Ljósmyndasamkeppni: Pappír í allri sinni mynd
Verðlaunasamkeppni meðal ljósmyndara í Ljósmyndarafélagi Íslands og SI
Í tengslum við Daga íslensks prentiðnaðar og ráðstefnuna Frá hugmynd til markaðar efna Ljósmyndarafélag Íslands og SI, í samvinnu við pappírsinnflytjendur, til samkeppni meðal félagsmanna um frumlegustu útfærslu á ljósmynd þar sem þemað er pappír í allri sinni mynd.
Myndirnar verða til sýnis í anddyri Salarins, Tónlistarhúsi Kópavogs, fimmtudaginn 22. september á ráðstefnunni „Frá hugmynd til markaðar“ og úrslit kynnt við lok hennar um kl. 17:00. Myndirnar verða einnig til sýnis á uppskeruhátíð íslensks prentiðnaðar á Broadway föstudagskvöldið 23. september. Sjá umfjöllun um hátíðina hér annars staðar.
Í boði SI verða vegleg verðlaun veitt fyrir þrjár bestu myndirnar:
- 1. verðlaun kr. 150.000,-
- 2. verðlaun kr. 100.000,-
- 3. verðlaun kr. 50.000,-
Að auki hljóta vinningshafar miða fyrir tvo á uppskeruhátíð íslensks prentiðnaðar.
Nánari lýsing stjórnar Ljósmyndarafélags Íslands á keppninni:
Ljósmyndakeppni: Þema – Pappír
Sýningin verður haldin í anddyri Salarins á meðan á ráðstefnunni stendur, hún síðan flutt á Broadway þar sem haldin verður uppskeruhátíð íslensks prentiðnaðar föstudagskvöldið 23. september. Í framhaldi af þessu er stefnt að því að fara með sýninguna víðar.
- Staðlaðir rammar verða notaðir í stærðinni 40x50 (svartir)
- Myndefni: Pappír (eins opið og það hljómar)
- Frágangur: Mynd skilað í endanlegri útprentun
- Stærð mynda: 30x40
- Skilafrestur: 15. september
Hver þáttakandi má að hámarki senda inn 5 myndir en reiknað er með að sýna um 30 myndir sem dómnefnd velur. Myndum skal skila til afgreiðslu Barna og fjölskylduljósmynda, Núpalind 1, 201 Kópavogi fyrir 15. september næstkomandi.
Höfum fengið tilboð í prentun mynda í stærðinni 30x40 með kartoni á kr. 1.500,-. Það er von okkar að sem flestir taki þátt en í undirbúningi er að halda slíkar keppnir a.m.k. tvisvar á ári og oftar ef áhugi verður.
Nánari upplýsingar veitir Pálmi í síma 865 2640, palmi@litmynd.com
