Markaðsmál
Framtíðin er í okkar höndum

SPROTAÞING 2007 - Staða og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja í brennidepli á þingi stjórnmálaflokka, stoðkerfis og atvinnulífs

Niðurstöður þingsins kynntar ítarlega í sérblaði Morgunblaðsins og SI - sem og á fagsýningu tækni- og þekkingariðnaðarins; Tækni og vit 2007

23.01.2007

Í samstarfi við þingflokka stjórnmálaflokka, ráðuneyti iðnaðar-, viðskipta- og menntamála, háskóla og aðila stoðkerfis og atvinnulífs efna SI og aðildarfélög til Sprotaþings 2007 föstudaginn 2. febrúar nk. Á þinginu verður fjallað um stöðu og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja á Íslandi og tillögur þingheims lagðar fram til afgreiðslu. Sprotaþing 2007 markar einnig upphaf Sprotavettvangs sem formlega hefur störf í kjölfarið.

Á Sprotaþingi munu þingflokkar leggja fram tillögur að frumvörpum og/eða breytingar á reglugerðum er varðar starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja á Íslandi. Fjallað verður um tillögurnar í nefndum og þær afgreiddar á þinginu. Áhugavert verður að fylgjast með niðurstöðum þingsins enda mikið í húfi fyrir jafnt atvinnulíf og hið opinbera.

  

ÞINGSTAÐUR:

Íþrótta- og sýningarhöllin í Laugardal

Stund:

Föstudaginn 2. febrúar frá 12:15 til 17:15

Skráning:

HÉR

               

Nánari upplýsingar, dagskrá, tillögur og þingnefndir

SPROTAÞING:

Staða og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja

Dagskrá

Verklag í þingnefndum

 

 

Tillögur stjórnmálaflokkanna og þingnefndir

                    

Sjá einnig nánari upplýsingar á PDF-sniði

     

Framtíðin er í okkar höndumNiðurstöður þingsins kynntar ítarlega í kjölfarið

Tillögur stjórnmálaflokkanna og niðurstöður þingsins verða kynntar ítarlega í sérstöku sprota- og hátækniblaði sem Morgunblaðið mun gefa út í samvinnu við SI föstudaginn 9. febrúar. Einnig verður þinginu gerð ítarleg skil á fagsýningu tækni- og þekkingariðnaðarins; Tækni og vit 2007, í byrjun mars.

Framtíðin er í okkar höndum

Málefni þingsins tengist áskorun og stefnu Samtaka iðnaðarins og aðildarfélaga undir yfirskriftinni "Framtíðin er í okkar höndum" ásamt tilboði SUT - Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja til ríkisstjórnarinnar um "Þriðju stoðina" í íslensku atvinnulífi.

 

  

Samstarfsaðilar um Sprotaþing 2007:

      

Framtíðin er í okkar höndum

 

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica