Menntun og fræðsla

Vel menntað og þjálfað starfsfólk er grunnur að verðmætasköpun og samkeppnishæfni fyrirtækja. Samtök iðnaðarins móta stefnu í iðn-, verk- og tæknimenntun ásamt yfirvöldum menntamála og ýmsum félagasamtökum. SI beita sér fyrir aðgerðum sem efla virðingu fyrir og aðsókn í iðn- og tæknimenntun.

Samtökin eru meðal bakhjarla Háskólans í Reykjavík, Tækniskólans og IÐUNNAR fræðsluseturs.

  • SI halda á lofti mikilvægi tæknimenntunar á háskólastigi og iðn- og verkmenntunar, m.a. með upplýsingum, auglýsingum og fundum
  • SI beita sér fyrir endurmenntun í iðn- og tæknigreinum. Fulltrúar SI starfa í fagráðum IÐUNNAR
  • SI starfa með stjórnvöldum í að efla iðn- og tæknimenntun
  • Gildi iðnaðar, nám og störf eru kynnt á öllum skólastigum. SI hefur þróað vefsetur um nám og störf sem kennarar og námsráðgjafar nota.
  • Unnið er að bættu iðn- og verknámi í samræmi við þarfir atvinnulífsins í starfsgreinaráðum og skólanefndum
  • Menntun og fræðsla verkstjóra og millistjórnenda er viðfangsefni SI
  • SI eiga aðild að félagi um eflingu verk- og tæknifræðimenntunar
  • SI beita sér fyrir menntun ófaglærða. Fulltrúi SI situr í stjórn Starfsafls, starfsmenntasjóðs ófaglærðra á Flóasvæðinu
Senda grein


Á döfinni

Enginn viðburður fannst skráður.




This website is built with Eplica CMS