Menntun og fræðsla
Frumkvöðlamenntun og kreppa

Frumkvöðlamenntun og kreppa

12.06.2009

Fræðslufundur um uppbyggingu og árangur af frumkvöðlakennslu í skólum í Finnlandi verður haldinn á 6. hæð í Borgartúni 35, þriðjudaginn 16. júní kl. 09.00–10.30.

Jouko Havunen frá Háskólanum í Vaasa í Finnlandi segir frá árangri þessa verkefnis sem ráðist var í m.a. sem viðbrögð við efnahagskreppunni sem gekk yfir Finnland árið 1990.

Mörg frumkvöðlafyrirtæki vaxa og dafna í kringum útflutning og erlend samskipti og því er auðug flóra af litlum og meðalstórum fyrirtækjum m.a. grunnur af heilbrigðu efnahagskerfi hvers lands.

Samstarfsaðilar Útflutningsráðs í þessu verkefni eru Samtök iðnaðarins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma  511 4000 .

Sjá auglýsingu hér.

 



Senda grein




Þetta vefsvæði byggir á Eplica