Orku- og umhverfismál
Náttúruvernd og nýting náttúruauðlinda

Náttúruvernd og nýting náttúruauðlinda - Hver er stefna stjórnvalda? Er hægt að sætta sjónarmið um nýtingu og verndun?

Morgunfundur stjórnar og ráðgjafaráðs Samtaka iðnaðarins á Hótel Nordica fimmtudaginn 5. október frá 8:00 til 10:00

18.09.2006

Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Andri Snær Magnason rithöfundur og Illugi Gunnarsson hagfræðingur fjalla um þetta viðkvæma deilumál á opnum morgunfundi Samtaka iðnaðarins fimmtudaginn 5. október nk á Hótel Nordica kl. 8:00. Fundarstjóri verður formaður Samtaka iðnaðarins, Helgi Magnússon.

Iðnaðarráðherra mun gera grein fyrir stefnu stjórnvalda en meginefni fundarins er að leita svara við þeirri spurningu hvort hægt sé að sætta sjónarmið um nýtingu annars vegar og verndun hins vegar.

Að loknum inngangserindum munu ræðumenn sitja á rökstólum undir stjórn Svanhildar Hólm Valsdóttur og skiptast á skoðunum um þessi efni.

Fundurinn er öllum opinn.

Ræðumenn:

Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra Andri Snær Magnason    Illugi Gunnarsson 

  • Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra
  • Andri Snær Magnason rithöfundur
  • Illugi Gunnarsson hagfræðingur
  • Pallborðsumræður ræðumanna

Svanhildur Hólm Valsdóttir 

Stjórnandi pallborðs: Svanhildur Hólm Valsdóttir

Helgi Magnússon

Fundarstjóri: Helgi Magnússon formaður SI


 

Senda grein





Leita á vefnum


Tungumál




Þetta vefsvæði byggir á Eplica