Starfsskilyrði iðnaðar
Útvistun upplýsingatækni

ÚTVISTUN - allra hagur

Ráðstefna fimmtudaginn 1. mars í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal frá 13:00 til 15:00

25.02.2007

Í samvinnu við Ríkiskaup og ráðuneyti fjármála, iðnaðar og viðskipta, efna Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Samtök iðnaðarins til ráðstefna um stefnu og ávinning að útvistun verkefna og þróun opinberra innkaupa í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal fimmtudaginn 1. mars frá 13:00 til 15:00.

Ráðstefnan er opin og aðgangur ókeypis. Sætaframboð er þó takmarkað og er þess óskað að gestir tilkynni mætingu HÉR í gegnum vefsetrið www.si.is, á netfangið skraning@si.is eða í síma 591 0100 fyrir lok miðvikudags 28. febrúar nk.

SKRÁNING HÉR

Dagskrá:

12:45

Móttaka gesta - afhenging gagna

13:00

Útvistunarstefna ríkisins - staða og framkvæmd

Árni M. Mathiesen

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra

Markmiðið er að ná 400 milljóna króna sparnaði árlega á árunum 2007 til 2010 en þeim fjármunum er ríkisstofnunum ætlað að nýta til bættrar þjónustu. Hvernig verður þeim markmiðum náð?

Umfang upplýsingatækni hjá opinberum aðilum – sameiginlegur ávinningur til útvistunar

M00thorolfur

Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr hf.

  

Kynnt verður niðurstaða könnunar SI og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis á umfangi upplýsingatækni hjá opinberum stofnunum, rætt um möguleika til útvistunar á því sviði og hver ávinningurinn gæti orðið.

Samstarfsvettvangur um þróun opinberra innkaupa til að örva nýsköpun og útvistun

Júlíus S. Ólafsson

Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa

    

Aðstandendur nýs samstarfsvettvangs um þróun opinberra innkaupa eru Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins, Ríkiskaup og ráðuneyti fjármála-, iðnaðar- og viðskipta.

Reynsla og ávinningur að útvistun á upplýsingatækni:

Ríkisskattsstjóri

Bragi Leifur Hauksson, deildarstjóri upplýsingatæknideildar

Icelandair

Hjörtur Þorgilsson upplýsingatæknistjóri

       

Fyrirspurnir

                      
Eggert Claessen

Fundarstjóri:

Eggert Claessen,

formaður Samtaka

upplýsingatæknifyrirtækja

      

15:00

Í lok ráðstefnu gefst ráðrúm til spjalls yfir kaffiveitingum.



                         

Ráðstefnan er opin og aðgangur ókeypis. Sætaframboð er þó takmarkað og er þess óskað að gestir tilkynni mætingu í gegnum vefsetrið www.si.is, á netfangið skraning@si.is  eða í síma 591 0100 fyrir lok miðvikudags 28. febrúar nk.

 

SKRÁNING HÉR

                             

Samstarfsaðilar um útvistun

 

Senda grein




Þetta vefsvæði byggir á Eplica