|
|
Gæðahandbók |
Dags. |
16/04/03 |
|
Bls. |
0/1 |
||
|
Höf. |
Stjórn |
||
|
Samþ. |
Stjórn |
||
|
Útgáfa. |
1 |
||
|
|
|
|
|
|
Leiðbeiningar |
FRAMTÍÐARSÝN LANDSSAMBANDS BAKARAMEISTARA TIL
ÁRSINS 2006
|
Nr. 100-L |
|
Framtíðarsýn og árangur
F1
Fjölbreytni
í fyrirrúmi
Bakarar nálgast viðskiptavini sína á fjölbreyttari hátt en áður. Nú geta neytendur pantað vörur í gegnum síma eða internet og fengið nýbakað, heitt bakkelsi sent heim innan skamms tíma. Sérhæfðir bílar aka um byggingahverfi og atvinnusvæði og selja út um lúgu nýbakað smurt brauð og smárétti, kaffi og aðra drykki. Bakarar leggja áherslu á fjölbreytt vöruúrval. Meðal annars hafa þeir á boðstólum nýsmurðar samlokur, kalda og heita smárétti, s.s pasta, súpur, fylltar bökur og aðra holla rétti. Ís, hágæðakaffi, vín og konfekt er orðinn sjálfsagður hluti vöruúrvals í bakaríum. Athygli neytenda er stöðugt haldið fanginni með nýjungum og uppákomum. Bakaríin bjóða fjölbreytt úrval vöru á hagkvæmu verði með samvinnu við önnur bakarí. Bakarí um land allt hafa í auknum mæli skapað sér sérstöðu með ýmsum hætti á undanförnum árum. Þar má nefna séríslenskar afurðir, s.s. kryddbrauð með íslenskum villijurtum og afurðir sem tengjast sögu og menningu, bæði innlendri og erlendri, með einhverjum hætti. F2
Fersk ímynd,
jákvætt viðhorf viðskiptavina og markaðsárangur – eftirsóknarverður
viðkomustaður fjölskyldunnar
Íslensk bakaraiðn einkennist af trausti, faglegum metnaði,
áreiðanleika og virðingu. Bakarar eru sýnilegir alla daga, vandir að virðingu
sinni og njóta trausts viðskiptavina sinna. Neytandinn er nú meðvitaður um
hollustu, ferskleika og hagkvæmni þess að auka hlut brauðs í mataræði sínu.
Hann gerir kröfur um ferskt og nýbakað brauðmeti frá handverksbakara sínum
sem hann veit að hann getur treyst. Íslenskir bakarar eru fyllilega færir um
að verða við kröfum neytenda og nú er engin máltíð án nýbakaðra brauða úr
handverksbakaríum landsins. Brauðneysla hefur aukist töluvert undanfarin fimm
ár og er meira í takt við það sem þekkist hjá öðrum þjóðum.
Íslensk handverksbakarí hafa kollvarpað bensínstöðva- og
sundlaugarbakstri leikmanna.
Góða stöðu íslenskra handverksbakaría má þakka sterku Landssambandi bakarameistara sem tekur virkan þátt í markaðssetningu og kynningarstarfsemi. Bakarí, bílar og fatnaður bera þess merki að þar sé fagmennska í fyrirrúmi. F3
Framsækin,
kröftug og hagkvæm fyrirtæki
Bakarí eru
framsækin og kröftug fyrirtæki. Afkoma í greininni er góð vegna þess að
fyrirtækin eru orðin stærri og færri.
Nýting framleiðslutækja og starfsfólks er mjög góð og launahlutfall
hefur dregist saman. Hagkvæmni
stærðarinnar skilar sér í betri nýtingu húsnæðis, og annars
fastakostnaðar. Vinnuálag á
starfsmenn fyrirtækjanna er orðið hóflegt og lífsgæði meiri en áður var. Forsendur – Hvað þarf til?
A1
Fagmennska
og fræðsla – forsenda árangurs.
Ungt fólk sækir nú í auknum mæli í
bakaranám vegna þess að vinnan er skapandi og starfssviðið fjölbreytt. Nýliðun í greininni er jöfn og stöðug.
Ungir nýútskrifaðir sveinar eru fullir af eldmóði og faglegum metnaði þar sem
handverkið er orðið að list. Lítið er um ófaglærða í bakaraiðn þar sem námsframboð er fjölbreytt í sí- og endur-menntun sem tekur til vöruþróunar, rekstrar, sölu- og markaðsmála auk sérhæfðs fagnáms. Hátt menntunarstig hefur orðið til þess að fagmenn haldast lengur í tengslum við greinina. Margir hafa nýtt sér framhaldsnám sem stendur til boða í fagskólanum í kökugerð og skreytingum. Nám tengt bakstri er sveigjanlegt og hægt er að ljúka námi á mismunandi stigum með því að fara á starfsþjálfunarsamning eða námssamning hjá meistara. Bakarameistarar taka virkan þátt í menntun starfsfólks og hvetja það til endurmenntunar. Þannig tryggja þeir sér starfsfólk sem starfar lengur í fyrirtækinu og nýtist betur en ella. Meðal annars hefur afgreiðslufólk í brauðbúðum stundað nám í sölu- og markaðsmálum sem hefur skilað bakaríunum ánægðari viðskiptavinum og betri afkomu. A2
Góð starfsskilyrði og sterk samkeppnisstaða
Stóraukið samstarf og sérhæfing bakaría ásamt bættum starfsskilyrðum leiðir til aukinnar hagkvæmni í rekstri íslenskra bakaría og lækkar framleiðslukostnað. Þetta hefur leitt til stóraukinnar markaðshlutdeildar og þess að verulega hefur dregið úr innflutningi á brauðvörum. Bakarar geta keypt hráefni á sambærilegu verði og erlendir samkeppnis-aðilar. Það ásamt hagstæðu raforkuverði, lækkuðum sköttum á fyrirtæki og aukinni gæðastjórnun hefur skapað sterkari og samkeppnishæfari rekstrareiningar. A3
Virkt
vöruþróunar og nýsköpunarstarf
Síðustu ár hefur öflugt vöruþróunar- og nýsköpunarstarf verið unnið í bakaríum og margar nýjar vörutegundir litið dagsins ljós. Bakarísbúðir eru aðlaðandi, vöruúrvalið er fjölbreytt og alltaf eitthvað nýtt og heitt í söluborðinu. Mikil fjölbreytni er í framleiðslu á fljótlegum réttum og heimakstursþjónusta þykir nú sjálfsögð. Mikill árangur hefur náðst með þróun á nýtingu afgangsbrauðs í fóður. A4
Kröftugt
kynningar- og markaðsstarf
Auknar markaðsmælingar leiða til þess að betri árangur næst með kynningarstarfi og sameiginlegum átaksverkefnum. Framleiðslukostnaður fer lækkandi með auknum viðskiptum og samstarfi milli bakaría. Þetta stuðlar m.a. að lækkuðu vöruverði. Nú getur neytandinn fengið aðgengilegar upplýsingar um vörur og þjónustu LABAK félaga á vefnum www.meistarinn.is. Öll bakarí reka sinn eigin vef. Lögð er áhersla á að laða erlenda ferðamenn í bakarí og kynna fyrir þeim séríslenskar vörur. Þetta er ein helsta forsenda útflutnings í greininni. A5 LABAK er sterkt félag um sameiginlega hagsmuni Allir handverksbakarar telja hagsmunum sínum best borgið með því að vera félagar í LABAK og taka þátt í sameiginlegum kostnaði við átaksverkefni. Með þessu næst hámarksárangur og –afrakstur fjármagns til sameiginlegra hagsmunamála. LABAK og SI eru bakhjarlar og skapa forsendur fyrir sameiginlegt starf og átaksverkefni greinarinnar. Mikil samstaða er milli félagsmanna og virkt samstarf jafnt milli dreifbýlla svæða og þéttbýlis. Upplýsingaflæði milli félagsmanna er gott gegnum heimasíður, fagtímarit og fréttabréf. Reynsluhópar eru starfandi um allt land, samstarf milli bakaría gott og góð tengsl við erlend fagfélög og fyrirtæki. A6
Góð stjórnun, fagmennska, gæði og hagkvæmni í fyrirrúmi
Stjórnendur bakaría hafa staðgóða þekkingu á rekstri fyrirtækja, gæða- og markaðsmálum starfsmannamálum og vinnuumhverfi. Skipulega og kerfisbundið er staðið að því að uppfylla kröfur stjórnvalda um innra eftirlit og hollustuhætti við framleiðslu. Fagmennska er í fyrirrúmi og stöðugt unnið að auknum vörugæðum og betri þjónustu. Starfsandi í
bakaríum er góður og með nýrri tækni hefur tekist að gera vinnutíma og
vinnuaðstöðu bakara fjölskylduvænni. Þá hefur hagkvæmni í dreifingu til og
frá bakaríum leitt af sér aukna arðsemi í verslun og nýjar samskiptaleiðir
við viðskiptavini og birgja. |
|||