|
|
Gæðahandbók |
Dags. |
03/05/06 |
|
Bls. |
1/3 |
||
|
Höf. |
Stjórn |
||
|
Samþ. |
Stjórn |
||
|
Útgáfa. |
2 |
||
|
|
|
|
|
|
LÖG |
Lög
Tannsmiðafélags Íslands |
Nr. 400S |
|
Félagið heitir Tannsmiðafélag Íslands.
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.
Markmið félagsins eru: að stuðla að kynnum og samvinnu meðal tannsmiða í
landinu, að efla og vernda hagsmuni þeirra og réttindi, að gæta faglegra og félagslegra hagsmuna
iðngreinarinnar, stuðla að menntun og endurmenntun tannsmiða.
Félagið er aðili að Samtökum iðnaðarins (SI) og
Samtökum atvinnulífsins (SA).
Félagar geta þeir orðið sem eru handhafar
meistarabréfs eða sveinsbréfs í tannsmíði. Þeir þurfa að skila inn skriflegri
umsókn til að öðlast full réttindi.
Úrsögn úr félaginu þarf að berast stjórninni skriflega og þarf
viðkomandi að vera skuldlaus við félagið. Tannsmiðir sem ekki stunda
sjálfstæðan rekstur eru ekki aðilar að Samtökum iðnaðarins og Samtökum
atvinnulífsins. Allir félagsmenn hafa
sömu réttindi.
Nýútskrifaðir tannsmiðir úr Tannsmiðaskóla Íslands
gerast sjálfkrafa félagar og félagsgjöld þeirra falla út fyrsta árið. Eldri tannsmiðir(67ára), sem hættir eru
störfum halda réttindum sínum í félaginu en félagsgjöld falla niður. Stjórn
félagsins hefur heimild til að skilgreina og veita menntuðum tannsmiðum sem
ekki starfa í greininni þjónustu, eftir atvikum gegn gjaldi.
Aðalfundur skal haldinn vor hvert. Til hans skal
boða skriflega með sannanlegum hætti, með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir: 1.
Fundargerð síðasta
aðalfundar er lesin. 2.
Yfirlit yfir störf og
framkvæmdir stjórnarinnar á liðnu ári. 3.
Endurskoðaðir reikningar
fyrir liðið reikningsár. 4.
Farið yfir starfsáætlun yfirstandandi
árs. 5.
Ákvörðun félagsgjalda. 6.
Lagabreytingar. 7.
Kjör formanns. 8.
Kjör 2ja stjórnarmanna og
2ja meðstjórnenda. 9.
Kjör sáttanefndar (3
aðilar) 10.
Kjör skoðunarmanna
reikninga. 11. Önnur
mál.
Almennur félagsfundur fer með æðsta vald í málefnum
félagsins. Til hans skal boðað af stjórn félagsins. Ef fimm félagsmenn fara
sannanlega og skriflega fram á félagsfund skal stjórn verða við því. Til
félagsfundar skal boðað, skriflega með sannanlegum hætti, með minnst þriggja
daga fyrirvara. 10.gr. Stjórn félagsins skipa fimm menn. Formaður,
ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur. Meðstjórnendur sitja stjórnarfundi. Stjórnin vinnur samkvæmt gæðahandbók
félagsins. Félagsgjöld falla niður
fyrir stjórnarmenn. 11. gr. Stjórn stýrir starfi félagsins milli félagsfunda.
Hún undirbýr mál fyrir félagsfundi og hrindir í framkvæmd ákvörðunum
félagsfunda og aðalfunda. Formaður boðar stjórnarfundi. 12.gr. Félagið stendur ekki að kjarasamningi en gerður skal
ráðningarsamningur/vinnustaðasamningur milli launþega og atvinnurekanda. 13. gr. Tekjur félagsins renna í félagssjóð. 14. gr. Lögum þessum má ekki breyta nema á löglega boðuðum
aðalfundi enda hafi þess sérstaklega verið getið í fundarboði og frá því
greint hverjar tillögur að lagabreytingum liggi fyrir fundinum.
Lagabreytingar öðlast gildi hljóti þær samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða. 15. gr. Aðalfundur getur, með sama hætti og um getur í
14.gr., ákveðið að leysa félagið upp. Fundur sá, sem það samþykkir með
lögmætum hætti, ákveður einnig greiðslu skulda og hvernig ráðstafa skuli
eignum félagsins. 16. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Reykjavík, 7.
október 2003.
|