Viðburðir
24.11.2017 kl. 9:00 - 10:00 Hús atvinnulífsins, Kvika, 1. hæð

Litla Ísland - fræðslufundur um samninga

Fjórði fundur í fræðslufundaröð Litla Íslands verður föstudaginn 24. nóvember kl. 9-10 í Húsi atvinnulífsins en þá mun Inga Björg Hjaltadóttir, héraðsdómslögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur, ráðgjafi og eigandi hjá Attentus, fjalla um helstu samninga í fyrirtækjarekstri og mikilvægi vandaðrar samningagerðar.

Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundina geta fylgst með þeim í beinni útsendingu á nýrri heimasíðu Litla Íslands - www.litlaisland.is 

Dagskrá allra fundanna má nálgast hér (PDF)