Viðburðir
28.11.2017 kl. 16:00 Rafiðnaðarskólinn, Stórhöfða 27

Félag löggiltra rafverktaka - aðalfundur

FLR, Félag löggiltra rafverktaka, sem er aðildarfélag SART heldur aðalfundi í Rafiðnaðarskólanum, Stórhöfða 27, þriðjudaginn 28. nóvember kl. 16.00. Þá verður jafnframt opinn fundur um rafmagnsöryggismál sem ber heitið: Einangrun orku / læsa - merkja - prófa. Fyrirlesarar eru Jóhann Ólafsson, fagstjóri rafmagnsöryggis hjá Mannvirkjastofnun, og Óskar Örn Pétursson, rafiðnfræðingur.