Framleiðsluþing SI
Fyrsta Framleiðsluþing SI verður haldið 6. desember í Hörpu kl. 8.00-11.00.
Á Íslandi er fjölbreyttur og umfangsmikill framleiðsluiðnaður sem skapar fjölda starfa og mikinn gjaldeyrir. Íslensk framleiðsla er einn af burðarásum hagkerfisins þar sem mikilvæg verðmæti verða til. Á þessu fyrsta Framleiðsluþingi SI verður leitast við að svara því hver eru helstu tækifæri og áskoranir þeirra sem framleiða íslenskt. Af þessu tilefni kemur sérfræðingur frá Dansk Industri til landsins og gefur innsýn í hvað danskir framleiðendur hafa gert til að skapa vörum sínum sérstöðu innanlands og utan.
Dagskrá
- Setning
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
- Ávarp Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Verðmæt íslensk framleiðsla Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Made in
Iceland Bryndís Skúladóttir, sviðsstjóri framleiðslusviðs SI
- Hvað er
íslenskt? Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við hönnunar- og
arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands
- Vilja
neytendur íslenskt? Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna
- Er nægt
hillupláss fyrir íslenska framleiðslu? Jón Björnsson, forstjóri Festi
- Made in
Denmark Jens Holst-Nielsen, sérfræðingur í alþjóðaviðskiptum hjá Dansk Industri
- Helstu
tækifæri og áskoranir íslenskra framleiðenda - Pallborðsumræður Aðalheiður
Héðinsdóttir, eigandi Kaffitárs - Eyjólfur Eyjólfsson, forstjóri Axis - Finnur
Geirsson, forstjóri Nóa-Siríus - Nótt Thorberg, forstjóri Marel á Íslandi, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Fundarstjóri er Gestur Pétursson, forstjóri Elkem á Íslandi og formaður Framleiðsluráðs SI, sem jafnframt stýrir umræðum í pallborði.
Allir velkomnir. Þingið hefst kl. 8.30 og boðið er upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00.