Viðburðir
16.04.2018 kl. 14:00 - 16:00 Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa

Ársfundur atvinnulífsins

Ársfundur atvinnulífsins 2018 fer fram þriðjudaginn 16. apríl í Hörpu kl. 14-15.30 og  er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Framfarir í hundrað ár er yfirskrift Ársfundar atvinnulífsins 2018 en fundurinn er hluti af 100 ára dagskrá afmælisárs fullveldisins. Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir ávarpa fundinn ásamt dr. Eamonn Butler framkvæmdastjóra, Adam Smith-stofnunarinnar í London.

Boðið verður upp á tímaflakk á fundinum en hópur stjórnenda fer í ferðalag um söguna, það sem hefur áunnist á hundrað árum og framtíðina. Þátt taka Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, Orri Hauksson, forstjóri Símans, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Anna Svava Knútsdóttir, eigandi ísbúðarinnar Valdís ásamt Stefáni Pálssyni sagnfræðingi.

Halldór Baldursson mun teikna skopmynd morgundagsins á staðnum en fundinum stýrir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.

Að loknum fundi fer fram netagerð með tónlist og tilheyrandi. 

Skráning.