Viðburðir
04.10.2018 kl. 12:00 - 13:30 Grand Hótel Reykjavík

Mætum færni framtíðarinnar

Mætum færni framtíðarinnar er yfirskrift opins fundar sem Samtök iðnaðarins standa fyrir í Háteigi á Grand Hóteli Reykjavík fimmtudaginn 4. október næstkomandi kl. 12.00-13.30 um nýja menntastefnu samtakanna. Á fundinum verður farið yfir helstu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir til að skapa menntakerfi fyrir nýjar kynslóðir sem styður við velmegun og samkeppnishæfni þjóðarbúsins. Kynntar verða tillögur að umbótum sem miða að því að menntun mæti þörfum atvinnulífs framtíðarinnar þar sem
krafist verður annarrar færni en nú þekkist. Fundarstjóri er Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála hjá SI.

Dagskrá

  • Atvinnulífið og menntun - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Ný menntastefna SI - Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI, og Vilhjálmur Hilmarsson, sérfræðingur í greiningum hjá SI
  • Færni framtíðarinnar - Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, og Guðmundur Hafsteinsson, yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant
  • Pallborðsumræður - Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar.


Boðið verður upp á léttan hádegisverð.

Bókunartímabil er frá 24 sep. 2018 til 4 okt. 2018