Viðburðir
Er fasteignamarkaðurinn í jafnvægi?
Hádegisverðarfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga í samstarfi við Samtök iðnaðarins verður haldinn þriðjudaginn 16. október kl. 12.00-13.15 í Vox Club á Hilton Reykjavík Nordica. Fundarstjóri er Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins.
Dagskrá
- Stöðugleiki á íbúðamarkaði? - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI.
- Staðan á fasteignamarkaði - Hæðir og lægðir - Sölvi Blöndal frá Gamma.
Frítt fyrir félaga FVH, aðrir 4.900 krónur. Hádegisverður innifalinn.
Á vef FVH er hægt að skrá sig.