Viðburðir
24.10.2018 kl. 8:30 - 10:00 IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20

Gæðastjórnun í byggingariðnaði

IÐAN fræðslusetur og Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins boða til fyrsta fundar í fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði miðvikudaginn 24. október nk. kl. 8.30 – 10.00 í húsnæði IÐUNNAR í Vatnagörðum 20 í Reykjavík. Hvers vegna gæðastjórnunarkerfi – hver er ávinningurinn? er yfirskrift fundarins. Fundarstjóri er Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs.

Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 8.15.

Dagskrá

  • Jón Guðmundsson, fagstjóri bygginga hjá Mannvirkjastofnun
  • Guðrún Ólafsdóttir, gæðastjóri VHE
  • Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvols
  • Jón Ben Einarsson, formaður Félags byggingarfulltrúa

Í lokin gefst tími fyrir fyrirspurnir og umræður.

Allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig hér.