Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Heilbrigðistækniiðnaður

HeilbrigðistækniHeilbrigðistækni tekur til tækjabúnaðar, tækni, hugbúnaðar og tækniþekkingar sem notuð er á heilbrigðisstofnunum og starfsemi tengdri líftækni, heilsuvernd og læknavísindum. Hér er aðallega um að ræða það svið sem á ensku er kallað "Biomedical Engineering".

Lyfjagerð og framleiðsla hráefna til lyfjagerðar, líftækni og rannsókna- og þróunarstarf tengt heilbrigðisgreinum eru nátengdar framangreindum greinum og í starfsemi Samtaka iðnaðarins eru allar þessar greinar, sem tengjast heilbrigðissviðinu, flokkaðar undir heilbrigðistækniiðnað.

Upplýsingar um þróun þeirra starfsgreina sem falla undir heilbrigðistækniiðnað er að finna undir eftirfarandi fjórum starfsgreinaheitum samkvæmt skilgreiningu í ÍSAT 95:

  1. Lyfjagerð og framleiðsla á hráefni til lyfjagerðar
  2. Framleiðsla og viðhald á lækningartækjum
  3. Rannsóknar- og þróunarstarf í raunvísindum
  4. Hugbúnaðargerð  

Tvær fyrstu greinarnar í þessari upptalningu eru hreinar heilbrigðistæknigreinar en tvær hinar síðarnefndu eru blandaðar, þ.e. innihalda fyrirtæki sem ekki eða aðeins að hluta til vinna á sviði heilbrigðistækni.  Þetta gerir alla gagnavinnslu um þróun greinarinnar erfiðari en ef um hreina starfsemi sem tengist heilbrigðistækni væri að ræða.  Í sérstakri talnakönnun sem gerð var fyrir tilstyrk Heilbrigðistæknivettvangs, kom fram eftirfarandi mynd af þróun veltu í framangreindum fjórum greinum íslensks heilbrigðistækniiðnaðar.

Af framangreindum tölum kemur fram að þróun greinarinnar og vöxtur hafa verið mjög hröð á undanförnum árum.  Umsvif íslenskra fyrirtækja á þessu sviði eru í raun mun umfangsmeiri því að í framangreindum tölum koma ekki fram umsvif dótturfyrirtækja íslenskra fyrirtækja erlendis.  Séu þau tekin með þá má meira en tvöfalda þessar tölur.   

Útflutningur greinarinnar hefur einnig vaxið hröðum skrefum og er, þegar orðinn meiri en innflutningur á lyfjum.  Eftirfarandi yfirlit sýnir þróun útflutnings í greininni.

 


 

Á döfinni - 11 mar. 2010

Enginn viðburður fannst skráður.


 

Stefnumótunarverkefni

 


Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.