Húsgagnaiðnaður

Húsgagna- og innréttingaiðnaður nær bæði til miðjuframleiðslu og sérsmíði.
Starfssvið greinarinnar spannar bólstrun, innréttinga- og húsgagnaframleiðslu og uppsetningu innréttinga. Starfsgreinin starfar í opinni samkeppni við innflutning og þarf því að etja kappi við fyrirtæki með mun stærra markaðsvæði. Engu að síður hefur greinin lifað af harða samkeppni og gefur erlendum keppinautum ekkert eftir.
Alla tíð hefur verið lögð rík áhersla á vöruþróun og hafa kröfur kaupenda um fullhannaða vöru aukist hin síðari ár. Íslenskir framleiðendur og íslenskir hönnuðir hafa haldið sínum hluta af innanlandsmarkaði. Auknar kröfur markaðarins hafa eflt starfsgreinina sem á allt sitt undir kröfuhörðum kaupendum.
