Rétt til aðildar að Félagi húsgagn- og innréttingaframleiðenda eiga þau skrásett fyrirtæki sem starfa í húsgagna- og innréttingaiðnaði og meistarar, sem reka sjálfstætt húsgagna- og eða innréttingaverkstæði. Að aukihalda rétti sínum þeir meistarar, sem voru félagsmenn fyrir nafnbreytingu félagsins og ekki fullnægja ofangreindum skilyrðum.
Markmið og tilgangur félagsins
- Að safna öllum húsgagna- og innréttingfyrirtækjum landsins í einn félagsskap, efla samstöðu og gæta hagsmuna þeirra í því, er iðngreinina varðar.
- Að samræma afstöðu félagsmanna til starfsfólks, er þeir hafa í þjónustu sinni og tryggja sem best vinnufrið við húsgagna- og innréttingaframleiðslu.
- Að vera félagsmönnum vettvangur um allt, er snertir atvinnurekstur þeirra.
- Að vera málsvari félagsmanna gagnvart almenningi, öðrum hagsmunasamtökum og hinu opinbera.
- Að stuðla að vandaðri framleiðslu og framförum í iðngreininni í hvívetna.
- Að vinna að bættri menntun innan starfsgreinarinnar.
Styrktarsjóður Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda
Tilgangur sjóðsins er að efla kunnáttu í framleiðslu húsgagna og innréttinga og styrkja einstaklinga til frekara náms í greininni. Umsóknir sendist fyrir 1. mars 2005. Nánari upplýsingar um Styrktarsjóðinn.Árgjald Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda er þríþætt:
- Til Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda 3.000 kr. á ári.
- Til SI 0,07% af iðnaðarveltu fyrirtækisins (eftir að iðnaðarmálagjald hefur verið dregið frá). Lágmarksgjald kr. 10.000 ári.
- Til SA 0,21% af launagreiðslu síðasta árs. Lágmarksgjald kr. 8.000 á ári.
Árið 2002 ákvað stjórn SI að veita 25% afslátt af félagsgjaldi ársins 2002 auk þess sem skilvísir greiðendur gjaldsins til SI og SA fá 5% afslátt.
- Kennitala: 670974-0229
- Heimilisfang: Borgartúni 35
- Símanúmer: 591 0100
- Faxnúmer: 591 0101
Stjórn Félags húsgagna og innréttingaframleiðenda:
Arnar Aðalgeirsson, formaður
Aðrir í stjórna eru:
Árni I. Garðarsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Jóhann Hauksson, Gísli Jónsson, Guðmundur Ásgeirsson og Sigurður B. Sigurðsson.

