Meistarafélag bólstrara
Tilgangur félagsins er að efla menntun innan stéttarinnar og gæta hagsmuna félagsmanna.
Meðlimir geta þeir orðið sem hafa meistararéttindi í húsgagnabólstrun og stunda sjálfstæðan atvinnurekstur í greininni.
Árgjald er þríþætt:
- Til Félags húsgagnabólstrara 10.000 kr. á ári.
- Til SI 0,07% af iðnaðarveltu fyrirtækisins (eftir að iðnaðarmálagjald hefur verið dregið frá). Lágmarksgjald kr. 10.000 ári.
- Til SA 0,21% af launagreiðslu síðasta árs. Lágmarksgjald kr. 8.000 á ári.
Árið 2002 ákvað stjórn SI að veita 25% afslátt af félagsgjaldi ársins 2002 auk þess sem skilvísir greiðendur gjaldsins til SI og SA fá 5% afslátt.
- Kennitala: 590271-0399
- Heimilisfang: Borgartúni 35
- Símanúmer: 591 0100
- Faxnúmer: 591 0101
- Vefsíða: www.bolstrun.is
Stjórn félagsins
Loftur Þór Pétursson formaður
Ásgeir N. Ólafsson, Ásgrímur Þór Ásgrímsson og Óskar Sigurðsson

