Fyrirsagnalisti
Tilgangur sjóðsins er að efla kunnáttu í framleiðslu húsgagna og innréttinga og styrkja einstaklinga til frekara náms í greininni. Umsóknir sendist fyrir 1. mars 2005.
Það er staðreynd að margir verktakar eiga erfitt með að halda áreiðanlega verkskráningu. Þegar starfsmenn eru látnir skrifa tímaskýrslur vilja þær oft verða hálfgerður skáldskapur þegar starfsmenn rifja upp, nokkra daga aftur í tímann, hvað þeir voru að gera á tilteknum tíma.
Samtök iðnaðarins gæta hagsmuna húsgagnagreina í hvívetna. Í því fest m.a. að fylgst er með breytingum á lögum og reglugerðum sem varða réttindi og skyldur fyrirtækjanna og reynt er að hafa áhrif á starfsumhverfið með því að gefa umsagnir og taka þátt í undirbúningi reglugerða á vinnslustigi og með beinu sambandi við stjórnvöld og setu í nefndum.