Líftækni
Blodtrystingur

Hjartavernd finnur gen sem stjórnar blóðþrýstingi

11.05.2009

Vísindamenn frá Hjartavernd hafa fundið gen sem hefur áhrif á nýrnastarfsemi og nýrnabilun auk þess að finna í samvinnu við alþjóðlegt teymi vísindamanna gen sem stjórnar blóðþrýstingi og hefur áhrif á háþrýsting. Frá þessu er greint á mbl.is.

Þetta eru niðurstöður rannsókna sem fjallað er um í vísindatímaritinu Nature Genetics um helgina.  Annars vegar byggjast þær á niðurstöðu Öldrunarrannsóknar og hins vegar á langvarandi söfnun upplýsinga í Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar.

Um er að ræða tímamótaniðurstöður í rannsóknum á blóðþrýstingi.  Langvarandi háþrýstingur er ein helsta ástæða heilablóðfalla og verulegur áhættuþáttur fyrir þróun kransæðasjúkdóma og hjartaáfalla. Talið er að þriðjungur einstaklinga á miðjum aldri þjáist af háþrýstingi.

Vilmundur Guðnason, forstöðulækni Hjartaverndar, segir í viðtali að niðurstöður nýrnarannsóknarinnar gefi von um að hægt verði að öðlast betri skilning á langvinnri nýrnabilun og finna nýja meðferðarmöguleika eða koma í veg fyrir sjúkdóminn. Með hækkandi aldri þjóða er nýrnabilun vaxandi vandamál. Langvarandi nýrnabilun er einnig verulegur áhættuþáttur í hjarta og æðasjúkdómum.



Senda grein




Þetta vefsvæði byggir á Eplica