Mannvirkjagerð
Byggingaframkvæmdir

Lítil bjartsýni framundan í byggingariðnaði

27.10.2008

Allt stefnir í að um fjögur hundruð manns missi vinnu í byggingariðnaði um næstu mánaðarmót. Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, segir í Morgunblaðinu í dag að svo virðist sem mikill niðurskurður verði í verklegum framkvæmdum. Algjört frost sé á íbúðamarkaði og bjartsýni því lítil í geiranum. Hið opinbera þurfi að hefja verklegar framkvæmdir hið fyrsta.

Gunnar Þorláksson hjá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars segir að framkvæmdir stórra bygginga sem bankarnir stóðu á bakvið með fjármögnun muni stöðvast ein af annarri. Hann reiknar með að þurfa að segja upp nokkrum tugum um mánaðarmótin; „Þetta er skelfilegt gagnvart öllu því vinnandi fólki."

Kári Arngrímsson, forstjóri Keflavíkurverktaka tekur í sama streng og segir uppsagnir yfirvofandi. Allir séu að bíða eftir því að bankarnir verði starfhæfir að nýju.

„Samdrátturinn verður mikill, en hversu mikill og hversu langt tímabil hann mun ná yfir liggur ekki fyrir," segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags. Tillaga félagsmálaráðherra um hlutastörf gegn mótframlagi Atvinnuleysistryggingarsjóðs kunni þó að hjálpa til. Sveitarfélögin sem séu stór aðili á markaðnum hafi lýst yfir samdrætti og veturinn verði erfiður.



Senda grein




Þetta vefsvæði byggir á Eplica