Meistaradeild SI
Meistaradeild Samtaka iðnaðarins - MSI
Meistaradeildin hefur vaxið jafnt og þétt og nú starfa innan hennar 10 félög iðnmeistara.
Tilgangurinn er að skapa öflugan þverfaglegan umræðuvettvang og auka samstarf félagsmanna í byggingargreinum innan SI.
Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara
Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi
Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði
Múrarameistarafélag Reykjavíkur
Sjá bækling
Ábyrgðarsjóður MSI
Aðilar innan Meistaradeildar SI hafa gert með sér samkomulag um stofnun Ábyrgðasjóðs.
Tilgangur með Ábyrgðasjóðnum er að skapa traust milli viðskiptavina og verktaka sem starfa innan Meistaradeildar byggingagreina Samtaka iðnaðarins og tryggja viðskiptavinum félagsmanna MSI eins og kostur er að vinna framkvæmd af félagsmönnum MSI sé í samræmi við skriflegt samkomulag um verkið og góð fagleg vinnubrögð.
