Matvælaiðnaður
Matvælaiðnaður á Íslandi er ein af stærstu undirgreinum iðnaðarins með rúm 17% af heildarveltu í iðnaði. Þá er fiskvinnsla ekki talin með. Í matvælaiðnaði störfuðu á síðasta ári um 4000 manns sem nemur 12,7% af störfum í iðnaði eða 2,9% af heildarvinnuafli í landinu.
Fyrirtæki í matvælaiðnaði í Samtökum iðnaðarins eru um 90 talsins. Þar á meðal eru fyrirtæki í brauð- og kökugerð, framleiðslu tilbúinna rétta, kaffiframleiðslu, kjötiðnaði, kornvöruvinnslu, krydd- og bragðefnaframleiðslu, mjólkuriðnaði, niðursuðuiðnaði, pasta- og salatgerð, samlokugerð, sultu- og smjörlíkisgerð, sælgætis- og drykkjarvöruiðnaði, snakk- og kartöfluvinnslu. Langstærsti hópurinn eru bakarí sem eru um 40 talsins.
Bakarar eru í sérstöku félagi, Landsambandi bakarameistara, sem er með eigin stjórn og fjárhag. Félagið er aðili að Samtökum iðnaðarins sem sjá um rekstur þess skv. sérstöku samkomulagi.

