Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Matur

Kynning á nýrri matvælalöggjöf

5.2.2010

Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um nýja matvælalöggjöf í samstarfi við Matvælastofnun og önnur samtök í atvinnulífi. Fundirnir verða á eftirtöldum tímum:

9. febrúar kl. 14:30-16:30 að Borgartúni 35, Reykjavík, 6. hæð

16. febrúar kl. 14:30-16:30 að Borgartúni 35, Reykjavík, 6. hæð

22. febrúar kl. 14:30-16:30 í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, Akureyri, fundarsalnum Ánni á fjórðu hæð

Á fundunum munu sérfræðingar Matvælastofnunar kynna efni nýrrar matvælalöggjafar og breytingar sem hún hefur í för með sér.

Dagskrá:

·         Af hverju ný matvælalöggjöf? 

·         Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?

·         Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?  

Eftir hverja kynningu verður boðið upp á fyrirspurnir.

Fundarstjóri: Ragnheiður Héðinsdóttir, Samtökum iðnaðarins.  

Upplýsingar um matvælalöggjöfina eru á heimasíðu Matvælastofnunar: http://mast.is/logogreglur/matvaelaloggjofees.

Matvælaframleiðendur eru hvattir til að kynna sér löggjöfina. 

Félagsmenn eru hvattir til að koma á fundinn og fá svör sérfræðinganna við öllum sínum spurningum sem varða hina nýju löggjöf. Skráning þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið mottaka@si.is. Taka skal fram dagsetningu fundar.



Til baka, Senda síðu, Prenta síðu

 

 

Lög og reglur um matvæli

  • Umhverfisstofnun
    Reglugerðir sem gilda um framleiðslu og dreifingu matvæla
  • Yfirdýralæknir
    Lög og reglur gefnar út af lanbúnaðarráðuneyti
  • Fiskistofa
    Lög og reglur sem gilda um vinnslu sjávararfurða
  • Erlent
    Erlendar og alþjóðlegar stofnanir sem fást við málefni matvæla
 

Rannsóknir, þróun og þjón.

 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.