Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Prentiðnaður

ÞemamyndPrentgeirinn rúmar mörg ólík störf en prentun, bókband og grafísk miðlun (prentsmíð) eru undirstöðugreinar hans. Prentfyrirtæki eru hátæknivædd þjónustufyrirtæki og hafa fáar starfsgreinar tekið jafn stórstígum tæknibreytingum á tækni og prentiðnaðurinn. Kaupendur prentverks gera sífellt meiri kröfur um hraðvirkni og gæði og erlend samkeppni er mikil og óvægin.

Innan Samtaka iðnaðarins starfar starfsgreinahópur fyrirtækja í prent- og pappírsiðnaði en samtök atvinnurekenda í prenti voru meðal stofnenda SI fyrir rúmum áratug.

Samtök iðnaðarins vinna að hagsmunum fyrirtækjanna á öllum sviðum. Þau bæta almennt rekstrarumhverfi með því að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda og veita þeim stöðugt aðhald. Hlutverk SI er að fylgjast með alþjóðlegri þróun í atvinnurekstrinum og stuðla að hagkvæmni með því að innleiða nýjar og bættar aðferðir við stjórnun og rekstur fyrirtækja. Þá veita SI þjónustu og ráðgjöf og reyna af fremsta megni að gæta þess að farið sé að reglum á markaði. SI stuðla að samstarfi fyrirtækja í prenti, bæði innan greinarinnar og utan við önnur fyrirtæki m.a. með því að veita þjónustu tengda þverfaglegum málum á ýmsum sviðum. Þar mætti t.d. nefna gæðamál, launasamninga, lögfræði, markaðs- og kynningarmál, menntamál (t.d. Prenttæknistofnun), nýsköpun, staðlamál, stjórnun, umhverfismál, vinnumarkaðsmál og þannig mætti lengi telja.

 

Fréttir og greinar

TulipLineCrpp

15.2.2010 : TULIP velur Plastprent

Elsta vörumerki Danmerkur og eitt af stærri vörumerkjum í Evrópu á neytenda- og veitingamarkaði velur Plastprent sem birgja. „Við höfum verið að vinna í þessum samningum í tvö ár,“ segir Ólafur Steinarsson framkvæmdastjóri Plastprents hf. „Í síðustu viku fór fyrsta framleiðslan í okkar umbúðir og gekk allt eins og í sögu. Þetta er samningur til 2012 sem var undirritaður nýverið og er verðmæti hans á annað hundrað milljónir króna.  
 
Umhverfismerkið Svanurinn

11.1.2010 : Prentsmiðjan Oddi fær Svansvottun

Prentsmiðjan Oddi hefur fengið vottun norræna umhverfismerkisins Svansins. Það tryggir að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa. Umhverfisráðherra veitti leyfið sl. föstudag í húsnæði Odda.

 

 

Á döfinni í Prenti - 21 mar. 2010

Enginn viðburður fannst skráður.


 

Í brennidepli

 


 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.