Ráðstefna um SAMSKIPTI FJÁRFESTA OG FRUMKVÖÐLA föstudaginn 9. mars nk.
Ráðstefna í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, föstudaginn 9. mars frá 8:30 til 12:00 í tengslum við Tækni og vit 2007
![]() |
Samtök iðnaðarins og aðildarfélög efna til ráðstefnu um samskipti fjárfesta og frumkvöðla - í tengslum við sýninguna Tækni og vit 2007. Áhugaverðir gestir flytja erindi og valinkunnir einstaklingar úr röðum fjárfesta og frumkvöðla mæta í pallborð.
Þótt frumkvöðlarnir og þeirra hugmyndir skipti meginmáli í uppbyggingu og vexti sprotafyrirtækja er það engu að síður staðreynd að margar góðar hugmyndir fá ekki brautargengi vegna þess að fjármagn skortir til að halda fyrirtæki gangandi meðan á þróunarferli vörunnar stendur. Því er þessi þáttur í rekstri sprotafyrirtækja ekki síður mikilvægur en sjálf viðskiptahugmyndin og miklu máli skiptir að frumkvöðlar og fjárfestar nái að starfa sem best saman. Þannig aukast líkur á að uppskeran verði eins og til var sáð og að arðsemi verði viðunandi. Farið verður í saumana á þessum málum á ráðstefnunni 9. mars.
Meðal fyrirlesara auk Jons S. von Tetzchner verður Andrew McNair, framkvæmdastjóri tengslanetsins Connect Scotland, sem mun kynna nýstarlegar aðferðir við að tengja saman frumkvöðla og fjárfesta sem hafa gefið góða raun í Skotlandi. Vilborg Einarsdóttir, stofnandi og stjórnarmaður Mentor, mun fjalla um frumkvöðla í þekkingarfyrirtækjum og dr. Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Brúar – fjárfestingafélags, heldur erindi um samvinnu fjárfesta og frumkvöðla við uppbyggingu sprotafyrirtækja. Jafnframt verða pallborðsumræður þar sem fyrirlesararnir munu auk annarra einstaklinga með mikla reynslu úr þessum geira viðskiptalífsins ræða samskipti fjárfesta og frumkvöðla.
Ráðstefnan fer fram föstudaginn 9. mars frá kl. 8:30 til 12:00 í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, og er haldin í tengslum við stórsýninguna Tækni og vit 2007. Að lokinni ráðstefnu er gestum boðið að heimsækja Tækni og vit og eru velkomnir á bás SI og aðildarfélaga á sýningunni.
Tekið er við skráningum á ráðstefnuna hér á vefnum, en einnig er hægt að senda tölvupóst á skraning@si.is eða hringja í síma 591 0100. Tilkynna þarf þátttöku fyrir lok miðvikudagsins 7. mars nk. Almennt ráðstefnugjald kr. 7.900 og fyrir aðildarfyrirtæki SI kr. 5.900. Innifalinn er aðgöngumiði að sýningunni Tækni og vit 2007.
Tekið er við SKRÁNINGUM HÉR
Dagskrá: |
|||
|---|---|---|---|
8:30 |
Móttaka gesta, afhending gagna og morgunverður | ||
9:00 |
Setning |
||
Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður hjá Samtökum iðnaðarins |
|||
Reynsla frumkvöðuls: Stofnun, rekstur og framtíð alþjóðlegs hugbúnaðarfyrirtækis |
|||
Jon S. von Tetzchner, framkvæmdastjóri Opera Software |
|||
Frumkvöðlar í þekkingarfyrirtækjum |
|||
Vilborg Einarsdóttir, stofnandi og stjórnarformaður Mentor og stjórnarmaður í Samtökum sprotafyrirtækja |
|||
Samvinna – lykill að árangri |
|||
Dr. Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Brúar - fjárfestingafélags |
|||
10:30 |
Kaffihlé | ||
Tengjum frumkvöðla og fjárfesta - Connecting Startups and Investors |
|||
Andrew McNair, framkvæmdastjóri tengslanetsins Connect Scotland |
|||
Pallborðsumræður |
|||
Dr. Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Brúar - fjárfestingafélags |
|||
Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Marorku og formaður Samtaka sprotafyrirtækja |
|||
Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs |
|||
Jon S. von Tetzchner, framkvæmdastjóri Opera Software |
|||
Vilborg Einarsdóttir, stofnandi og stjórnarformaður Mentor og stjórnarmaður í Samtökum sprotafyrirtækja |
|||
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris - fjárfestingafélags |
|||
| Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: | |||
Eggert Claessen, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja |
|||
12:00 |
Ráðstefnulok Gestum er boðið að heimsækja bás SI og aðildarfélaga á stórsýningunni Tækni og vit 2007 sem fram fer í Fífunni í Kópavogi, dagana 8. til 11. mars. |
||
Ráðstefnan fer fram föstudaginn 9. mars frá kl. 8:30 til 12:00 í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs.
Tekið er við skráningum á ráðstefnuna hér á vefnum, en einnig er hægt að senda tölvupóst á skraning@si.is eða hringja í síma 591 0100. Tilkynna þarf þátttöku fyrir lok miðvikudagsins 7. mars nk. Almennt ráðstefnugjald kr. 7.900 og fyrir aðildarfyrirtæki SI kr. 5.900. Innifalinn er aðgöngumiði að sýningunni Tækni og vit 2007.
Tekið er við SKRÁNINGUM HÉR
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna veitir Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður hjá SI, í síma 591 0100, 8246114, netfang david@si.is. Umsjón með framkvæmd ráðstefnunnar er í höndum AP almannatengsla, sími 511 1230. Umsjón: Hrönn, netfang hronn@appr.is.

