Controlant hlaut Gulleggið 2009
Viðskiptahugmynd Controlant sem byggir á ferilvöktun á ferskum matvælum varð hlutskörpast í frumkvöðlakeppni Innovit 21. mars síðastliðinn og hlaut þar með Gulleggið.
Alls bárust yfir 100 hugmyndir en tíu kepptu til úrslita.
Hugmynd Controlant er einnig ætlað að auðvelda útflutning á ferskum fiski með skipum. Tæknin byggir á því að nemum er komið fyrir í vörunni sem segir til um hvar hún er stödd og upplýsingar um hitastig. Hitabilið sem varan þarf að geymast á er mjög þröngt. Með því að geta alltaf séð í rauntímaástand vörunnar er hægt að bregðast strax við ef breytingar verða og þar með koma í veg fyrir tjón. Tæknin gefur einnig möguleika á að rekja feril vörunnar og leggja fram gögn til væntanlegra kaupenda um ástand hennar frá framleiðanda. Að verkefninu standa rafmagns- og tölvuverkfræðingarnir Erlingur Brynjólfsson, Gísli Herjólfsson og Trausti Þórmundsson, Stefán Karlsson viðskiptafræðingur og Atli Þór Hannesson, tölvuverkfræðingur.
Í öðru sæti varð hugmyndin Responsible surfing sem er ætluð foreldrum unglinga til að stjórna netnotkun í gegnum farsíma. Kerfið getur til dæmis takmarkað MSN sendingar við ákveðinn tíma sólahrings og gefur einnig möguleika á að fylgjast með hvar síminn er staddur. Netnotkun barna og unglinga er vaxandi vandamál. Þróunin er sú að notkunin færist í auknum mæli úr heimilistölvum í farsíma sem gerir vöktun foreldra enn erfiðari.
Í þriðja sæti varð Risk en það aðferð sem er verið að þróa til að auðvelda læknum að meta þörf á endurkomu sjúklinga með sykursýki til eftirlits vegna hættu á sjónskerðingu eða blindu. Sjúkdómurinn getur valdið blindu og því er mikilvægt að sjúklingar komi reglulega til eftirlits. Það er hins vegar mjög mismunandi hversu oft þeir þurfa að koma og er verkefninu ætlað að fækka komum sjúklinga til læknis án þess að stefna heilsu þeirra í hættu.
Af þeim fjölda áhugaverðra tillagna sem bárust í keppnina má nefna Vigur sem er gagnvirt forrit ætlað til stærðfræðikennslu, Lifandi ráðgjöf sem er vímuefna fræðsla og hestaleikhús.
