Stóriðja
Álframleiðsla

Aukning álframleiðslu í Straumsvík 40 þúsund tonn

17.09.2008

Framleiðsla áls í Straumsvík mun aukast um 40 þúsund tonn á næsta ári vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins. Framkvæmdirnar eru samkvæmt deiliskipulagi innan byggingarreits og munu hefjast á næsta ári. Minni mengun verður af framleiðslunni vegna endurnýjunar hreinsibúnaðar, en andstæðingar stækkunarinnar eru ósáttir.

Gísli Ó. Valdimarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar, segir í 24 stundum í dag að aðveitustöðin verði stækkuð í austur og norður þar sem inntak rafmagns er og breytingar verði milli kerskála. Þurrhreinsibúnaðurinn verði einnig endurnýjaður. Þá verði 41 metra háir strompar settir upp.

„Við lítum svo á að útblásturinn minnki og það er fagnaðarefni,“ segir Gísli í viðtali við blaðið.

Andstæðingar stækkunarinnar eru afar ósáttir. Vitnað er í Pétur Óskarsson, talsmann Sólar í Straumi, sem segir að Rannveig Rist forstjóri Alcan hafi beitt hræðsluáróðri um stuttan líftíma rekstursins án stækkunar. Þannig hafi hún fengið Hafnfirðinga til að greiða atkvæði með stækkun. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi, segir að verið sé að fara á svig við vilja meirihluta bæjarbúa.



Senda grein




Þetta vefsvæði byggir á Eplica