bladaaugl2

Stendur þú skil á þínu?

Stendur þú skil á þínu?

Á hverju ári er samfélagið svikið um 40 milljarða vegna svartrar atvinnustarfsemi.

Hættum að kaupa og selja svarta vinnu.

 


Hvað má fá fyrir 40 milljarða

  • Fyrir 40 milljarða má leggja hefðbundinn þjóðveg hringinn um landið
  • Fyrir 40 milljarða má tvöfalda allar einbreiðar brýr á landinu, tvöfalda Hvalfjarðargöng og byggja Sundabraut
  • Fyrir 40 milljarða má tvöfalda Suðurlandsveg, bora Vaðlaheiðargöng, byggja höfn í Bakkafjöru og kaupa nýjan Herjólf
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að fjármagna rekstur Alþingis í 17 ár
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að fjármagna rekstur Háskóla Íslands 3 ár
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að fjármagna rekstur Landhelgisgæslunnar í 14 ár
  • Fyrir 40 milljarða má standa straum af öllum vaxtagreiðslum hins opinbera vegna erlendra lána í kjölfar efnahagshrunsins
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að minnka skattaálögur á einstaklinga um 36%
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að afnema tryggingagjaldið
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að fjármagna rekstur Landspítalans í eitt ár
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að byggja hátæknisjúkrahús
  • Fyrir 40 milljarða er hægt að reka alla almenna heilsugæslu í landinu í tvö ár
  • Fyrir 40 milljarða má greiða laun allra grunnskólakennara í Reykjavík í 4 ár
  • Fyrir 40 milljarða má bjóða upp á ókeypis skólamáltíðir fyrir 40 þúsund grunnskólanemendur í 13 ár
 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.