Sterkt net
- sterkt net
Innan Samtaka iðnaðarins eru rúmlega 1200 fyrirtæki og félög sjálfstæðra atvinnurekenda. Þau eru mjög ólík innbyrðis, hvort sem litið er til stærðar, framleiðslu eða markaða. Þessi mikla fjölbreytni gerir starfið í senn vandasamt og nauðsynlegt. Þess er gætt að leggja áherslu á það sem er sameiginlegt en um leið hlúð að því sértæka. Þetta hefur tekist með svo farsælum og árangursríkum hætti að Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda í landinu.
Samtök iðnaðarins vinna að hagsmunum iðnaðarins á öllum sviðum og í nánu samráði við fyrirtækin sjálf. Byggt er á markvissri stefnumótunarvinnu níu starfsgreinahópa og á þriðja tug félaga. Þjónusta við félagsmenn er annars vegar við einstök fyrirtæki og starfsgreinahópa en hins vegar þverfagleg, s.s. í gæðamálum, menntamálum og markaðs- og kynningarmálum.
Meðal þess sem Samtökin fást við er að:
- Bæta almennt rekstrarumhverfi með því að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda
- Fylgjast með alþjóðlegri þróun í atvinnurekstri
- Fylgjast með og hafa áhrif á stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna, einkum gagnvart ESB
- Stuðla að hagkvæmum rekstri með því að innleiða nýjar og bættar aðferðir við stjórnun og rekstur
- Gæta þess að farið sé að reglum á markaði
- Efla samstarf fyrirtækja
- Veita þjónustu og ráðgjöf
Skrifstofa Samtaka iðnaðarins er til húsa að Borgartúni 35 (4. hæð), miðsvæðis í Reykjavík. Þar er góð aðstaða til fundahalda og upplýsingastarfsemi.
