Fréttir af SI

Fyrirsagnalisti

25. apr. 2016 Almennar fréttir : Íslenskur iðnaður á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut

Seinni þáttur sýndur í kvöld 25. apríl

19. apr. 2016 Almennar fréttir : Íslenskur iðnaður á Hringbraut

Íslenskur iðnaður verður til umfjöllunar í tveimur þáttum á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.

21. mar. 2016 Almennar fréttir : Nýr forstöðumaður almannatengsla Samtaka iðnaðarins

Margrét Kristín Sigurðardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður almannatengsla Samtaka iðnaðarins

17. mar. 2016 Almennar fréttir : Fagfólkið - Stuttir og skemmtilegir þættir

Á næstu mánuðum verða vikulega til sýningar stutt og skemmtileg myndskeið á mbl.is. Þættirnir heita Fagfólkið.

10. ágú. 2010 : Tímamót í 26 ára keraframleiðslu hverfisteypufyrirtækisins Promens Dalvík

Promens Dalvík hefur náð þeim merka áfanga að framleiða Sæplastker númer 500.000 og 500.001 og voru þau afhent tveimur af dyggum viðskiptavinum verksmiðjunnar með viðhöfn síðastliðinn föstudag.

6. ágú. 2010 : Köstum tækifærunum ekki frá okkur

Framkoma íslenskra stjórnvalda við þau fáu erlendu fyrirtæki sem vilja fjárfesta hér á landi er algerlega óviðunandi að mati Samtaka iðnaðarins. Framkoma stjórnvalda við fyrirtæki eins og Magma Energy og Alcoa á Íslandi er með þeim hætti að orðspor þjóðarinnar út á við skaðast og líkur á samstarfi við erlenda fjárfesta minnkar til mikilla muna einmitt á þeim tíma þegar við þurfum mest á öflugu og farsælu samstarfi við erlenda fjárfesta að halda.

21. júl. 2010 : Orri Hauksson ráðinn framkvæmdastjóri SI

Orri Hauksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann er 39 ára vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Harvard Business School.

30. jún. 2010 : Framkvæmdastjóraskipti hjá SI

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. júlí 2010. Jón Steindór hefur starfað fyrir Samtök iðnaðarins, og áður Félag íslenskra iðnrekenda, í samtals 22 ár, lengst af sem aðstoðarframkvæmdastjóri en síðustu árin sem framkvæmdastjóri.

18. jan. 2010 : Vilmundur Jósefsson gefur áfram kost á sér sem formaður SA

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fer fram 21. apríl næstkomandi.

11. jan. 2010 : Tækifærið er núna

Nú er komið tækifæri til að beita nýjum aðferðum til lausnar Icesave-málinu en þetta ólukkumál hefur truflað alla framvindu á Íslandi í heilt ár. Nú er það skylda okkar allra að leita lausna. Þetta segja formenn Samtaka iðnaðarins, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands í grein í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag.

30. nóv. 2009 : Svigrúm til skattahækkana fullnýtt

Félagsfundur SI með ráðgjafaráði fór fram á Grand hóteli sl. fimmtudag. Umfjöllunarefni fundarins voru skattar og efnahagsmál. Tilgangur fundarins var að ræða margvísleg áhrif þeirra skattbreytinga sem eru í farvatninu á stöðu iðnaðarins og framvinduna í efnahagsmálum á næstu misserum.

30. sep. 2009 : Skortir vilja til verka

Vilja- og getuleysi ríkisstjórnarinnar til að örva atvinnulífið er óskiljanlegt, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, síðasta útspil umhverfisráðherra vegna framkvæmda á Suðurnesjum er hrópandi dæmi um þetta.

28. sep. 2009 : Farmers Market og Íslensk hollusta hlutu viðurkenningu úr Verðlaunasjóði iðnaðarins

Tvær viðurkenningar úr Verðlaunasjóði iðnaðarins voru veittar við hátíðlega athöfn í dag. Það voru Eyjólfur Friðgeirsson, líffræðingur í Íslensk hollusta og Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður í Farmers Market sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra afhenti hvorum um sig eina milljón króna, verðlaunagrip og viðurkenningarskjal.

24. sep. 2009 : Seðlabankinn herðir snöruna

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segist hættur að skilja vaxtastefnu Seðlabanka Íslands. „Við erum búin að segja mánuðum saman að það sé ekki hægt að búa við þetta vaxtastig. Með þessu er snaran hert hægt að rólega að fyrirtækjum og heimilum í landinu."Þetta kemur fram í viðtali við hann á visir.is í dag.

22. sep. 2009 : Vilmundur Jósefsson formaður SA

Vilmundur Jósefsson hefur tekið við sem formaður Samtaka atvinnulífsins, en Þór Sigfússon, sem verið hefur í leyfi frá formennsku í samtökunum frá 9. júlí, hefur ákveðið að víkja formlega úr sæti formanns SA.

22. sep. 2009 : Öll lán fari til Íbúðalánasjóðs

Til að tryggja jafnræði milli skuldara og auðvelda samræmdar aðgerðir er í umræðunni að Íbúðalánasjóður yfirtaki öll húsnæðislán bankanna. Jafnræði milli skuldara er lykilatriði í þessari umræðu og því má ekki gleyma að það eru fleiri en bankar sem hafa veitt húsnæðiskaupendum lán.

18. sep. 2009 : SI bíða eftir svörum frá Íbúðalánasjóði

Samtökin sendu í sumar bréf til Íbúðalánasjóðs þar sem þau óskuðu eftir endurskoðun á reglum um bankaábyrgð verktaka í byggingariðnaði. Erindinu hefur ekki verið svarað.

18. sep. 2009 : Vinnubrögð stjórnvalda valda töfum og tjóni

Samtök iðnðarins gagnrýna harðlega vinnubrögð stjórnvalda í samskiptum við erlenda fjárfesta og uppbyggingu iðnaðar sem reiðir sig á nýtingu orkuauðlinda. Stjórnvöld eru ekki samstiga og senda frá sér misvísandi skilaboð.

8. sep. 2009 : Veik króna styður við endurreisn

„Ég get alveg tekið undir þá skoðun sem talsvert hefur verið til umræðu að veikleiki krónunnar hjálpi til við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í efnahagslífinu. Veik króna veldur því að við fáum mun meira fyrir útflutningsvörur okkar og samkeppnisstaða innlendra framleiðenda gagnvart innflutningi er góð“, segir Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

2. sep. 2009 : Sögubækur og sement

Talsverð umræða hefur verið um sölu sements á Íslandi á liðnum vikum. Þar hefur m.a. verið reynt að gera Samtök iðnaðarins tortryggileg og fullyrt að þau vilji einokun á sementsmarkaði. Undir þessu verður ekki setið lengur.

Síða 1 af 3