• Víglundur Þorsteinsson

30. nóv. 2004

Íslenskt viðskiptaumhverfi

Af ráðgjafaráðsfundi SI 11. nóvember 2004

Á ráðgjafaráðsfundi Samtaka iðnaðarins 11. nóvember síðastliðinn kynnti Víglundur Þorsteinsson álit vinnuhóps sem stjórn SI fól að vinna um íslenskt viðskiptaumhverfi.

Tilefnið var skýrsla nefndar sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði til að fjalla um nokkra þætti í íslensku viðskiptaumhverfi en skýrslan kom út í september á þessu ári. Umfjöllun vinnuhóps SI tók mið af efnistökum og tillögum í þeirri skýrslu. Víglundur gerði að umtalsefni þau atriði í skýrslunni sem vinnuhópur SI taldi að Samtökin ættu að leggja áherslu á í málflutningi sínum um íslenskt viðskiptaumhverfi.

Óbreytt samkeppnislög gætu orðið fyrirtækjum fjötur um fót

Víglundur sagði að iðnaður væri í harðri samkeppni, innlendri og erlendri. Á EES svæðinu væru ýmsar skilgreiningar heldur rýmri en í íslenskum samkeppnislögum. Íslensk lagasmíð einkenndist af þrengri viðmiðum sem hamla vexti iðnfyrirtækja á Íslandi. „Í raun er gengið svo langt að verði ekki gerð breyting á viðskiptaumhverfinu gæti iðnaðurinn jafnvel koðnað niður hægt og bítandi. Vilji menn útrás og öflug fyrirtæki eru vaxtartækifærin heima grundvallaratriði,“ sagði Víglundur.

Samkeppnisyfirvöld beini kröftum sínum að eftirliti

Víglundur sagði að vinnuhópurinn væri ósammála ýmsu í tillögum nefndarinnar. Þar væri lögð áhersla á að leyfa samkeppnisyfirvöldum að brytja fyrirtæki niður ef þau yrðu of stór. Vinnuhópurinn teldi hins vegar að samkeppnisyfirvöld eigi fremur að beina kröftum sínum að eftirliti með ólögmætri hegðun en láta skipulag fyrirtækjanna afskiptalaust og leyfa þeim að þróast og dafna eins og þeim best hentar.

„Við teljum ákaflega litla hættu á að íslensk fyrirtæki verði of stór. Við þurfum frekar að hafa áhyggjur af því að þau séu of lítil fyrir alþjóðlegt samkeppnisumhverfi. Starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja verða að jafnast á við það besta sem þekkist á EES svæðinu.“

Neytenda- og eftirlitsþættir verði skildir að

Vinnuhópurinn vill að samkeppnisyfirvöld beiti traustu og virku eftirliti og tekur undir hugmyndir nefndar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis um að skipta upp þeim þáttum Samkeppnisstofnunar sem lúta að neytendaþættinum. Eftirlit eigi best heima í neytendastofu eins og rætt hefur verið um. „Við teljum gott að efla Samkeppnisstofnun til að hún megi koma í veg fyrir ólögmætt samráð og geti tryggt að samkeppnisreglur séu virtar í landinu.“  Samkeppnisstofnun á að sjá um aðhaldið en á ekki eyða kröftum í að meta hvort fyrirtæki með 50 milljóna króna veltu megi sameinast öðru með 1050 milljóna króna veltu.

Rannsóknar- og dómsvald í samkeppnismálum verði skilin að

Vinnuhópurinn leggur til að viðskiptaráðuneytið setji Samkeppnisstofnun starfsreglur en hún eigi ekki að setja sér þær sjálf eins og verið hefur. Í löggjöfinni verði tekið á almennum skilyrðum um þætti til refsingar og að fyrningarreglur verði festar í lög í stað þess að sækja þær í almennu hegningarlöggjöfina.

Breytingar á hlutafélagalöggjöf

Vinnuhópurinn  leggur til önnur viðmið við breytingu á hlutafélaglöggjöf en þá sem nefnd iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis byggir á. Vinnuhópurinn telur að fyrirtæki, sem er ekki skráð á almennum markaði, eigi að vera skylt að starfa eftir aðhaldssamari löggjöf en fyrirtæki sem kjósa ehf. formið og falli undir einfaldari löggjöf. Þá leggst hópurinn eindregið gegn því að gengið sé jafnlangt gegn starfandi stjórnarformanni og tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir með þeim rökum að það sé á ábyrgð stjórnar almenningshlutafélaga að marka stefnu en ekki einungis að hafa eftirlit með störfum framkvæmdastjóra. Þá er talið sjálfsagt að samþykkt um starfskjör og starfssvið stjórnarformanns verði lögð fyrir hluthafafund og frá því gengið með formlegri hætti en hingað til hefur tíðkast.

Í vinnuhópnum sátu Helgi Magnússon, Hreinn Jakobsson, Jón Diðrik Jónsson og Þorgeir Baldursson og Víglundur Þorsteinsson sem var formaður hópsins.

 

Á fundinum var jafnframt fjallað um nýjan háskóla sem SI, SA og VÍ eiga aðild að en Stefanía Katrín Karlsdóttir, rektor THÍ, og Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Marorku, fluttu erindi um væntingar og áherslur atvinnulífsins í þessu sambandi.