• SI

4. okt. 2005

Helstu verkefni stjórnar SI veturinn 2005-2006

Áherslur og framkvæmd verkefna í fjórum málaflokkum

Stjórn SI hefur undanfarið unnið að því að móta forgangsverkefni sem leggja ber megináherslu á í starfi Samtaka iðnaðarins veturinn 20052006. Á lista stjórnarinnar eru rúmlega 30 verkefni sem stjórnin hefur flokkað og forgangsraðað eftir mikilvægi fyrir iðnaðinn í heild. Verkefnin skipast í fjóra meginmálaflokka og stjórnin hefur ákveðið að setja á fót sérstakar málefnanefndir til að skapa festu um framkvæmd áhersluverkefna og fylgja þeim eftir.

Starf nefndanna felst í að gera tillögur um framkvæmd verkefna á viðkomandi málefnasviði, leggja fram framkvæmdaáætlanir, fara yfir fram komnar tillögur stjórnar, bæta við tillögum, útfæra framkvæmd, þar með talið að benda á heppilega samstarfsaðila þar sem við á og vakta þau mál sem eru ofarlega á baugi á sviðinu á hverjum tíma.

Málefnanefndirnar fjórar, sem nú eru að taka til starfa, eru eftirfarandi: 

1.  Starfsskilyrði iðnaðar

Sú nefnd starfar undir forystu Sveins Hannessonar, framkvstj. SI, og mun einbeita sér að verkefnum sem snúa að almennum starfsskilyrðum iðnaðar, gengis og efnahagsmálum.  Þá er  nefndinni ætlað að fjalla um fjölmörg viðfangsefni sem snúa að útboðsmálum, opinberum innkaupum og starfsskilyrðum verktaka.  Meðal áhersluverkefna má telja aðgerðir til koma að efnahagsstjórn landsins þ.m.t. umsvifum ríkisins, draga úr kostnaði og reglubyrði við opinbert eftirlit, herferð gegn kennitöluflakki og svartri starfsemi, virðisaukaskattsmál UT fyrirtækja vegna þjónustu við ríki og sveitafélög, einkavæðing ríkisrekinna tölvudeilda og reglur varðandi innflutt vinnuafl. 

2.  Markaðs og kynningarmál

Nefndin starfar undir forystu Jóns Steindórs Valdimarssonar, aðst.framkv. SI, og mun einbeita sér að verkefnum sem snúa að því að gera SI meira gildandi og sýnilegri í þjóðfélagsumræðunni, m.a. í samstarfi við fjölmiðla og alþingismenn.  Meðal áhersluverkefna má telja aðgerðir til að auka slagkraft SI sem öflugs þrýstihóps, leiðir til að ná eyrum alþingismanna, samskipti við fjölmiðla og upplýsingamiðlun.  

3.  Nýsköpun og þróunarmál

Sú nefnd starfar undir forystu Davíðs Lúðvíkssonar, forstöðumanns starfsgreina, þjónustu og þróunar hjá SI.  Nefndin mun einbeita sér að verkefnum sem snúa að nýsköpunar og þróunarmálum í öllum starfsgreinum, uppbyggingu hátækniiðnaðar og sprotafyrirtækja.  Meðal áhersluverkefna eru úrvinnsla og eftirfylgni með tillögum í hátækniskýrslu þ.m.t Sprotavettvangur  átak í uppbyggingu nýsköpunar og sprotafyrirtækja, straumlínustjórnun sem leið til aukinnar framleiðni og gæða, auk umfjöllunar um auknar kröfur til fyrirtækja og gæðamál.    

4.  Menntamál

Sú nefnd starfar undir forystu Inga Boga Bogasonar, fulltrúa menntamála og starfsþróunar hjá SI.  Nefndin mun einbeita sér að verkefnum sem snúa að almennum mennta og fræðslumálum iðnaðar á öllum skólastigum.  Meðal áhersluverkefna má telja sameiningu fræðslumiðstöðva iðnaðarins, ímynd og efling iðn og tæknimenntunar, að vinnustaðakennsla verði metin til jafns við skólakennslu, að menntun sé betur sniðin fyrir þarfir atvinnulífsins  auk aðgerða við koma Námsefnis og tækjasjóði iðnaðarins 

Málefnanefndunum er ætlað að verða fastur liður í starfsemi SI á næstu árum.  Í hverri nefnd starfa stjórnarmenn, starfsmenn SI og fulltrúar úr ráðgjafaráði. Nefndastarfið er opið og geta félagsmenn SI, sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi nefndanna, haft samband við ábyrgðarmenn þeirra á skrifstofu SI í síma 591 0100. 

 

Davíð Lúðvíksson