Upplýsinga- og útgáfumál
Fréttum, upplýsingum og fræðslu, sem varða hagsmuni iðnaðarins, er miðlað jafnt til félagsmanna, almennings og stjórnvalda. Kappkostað er að vanda til verka og nýta þá miðla sem best henta hverju sinni.
- Vefsetrið si.is er lifandi miðstöð upplýsinga- og fréttamiðlunar um allt er lýtur að hagsmunum iðnaðarins og starfsemi SI
- Til þess að þjóna tilteknum markmiðum eða markhópum notum við sérhæfð vefsetur í auknum mæli, til dæmis idan.is, ut.is, gsi.is, mannvirki.is, health.is og product.is
- Íslenskur iðnaður er fréttabréf sem við dreifum til allra félagsmanna, auk hundruða áskrifenda sem láta sig málefni iðnaðarins varða
- Hagtölur iðnaðarins eru birtar á vef SI auk margvíslegra upplýsinga um iðnað. Þær eru gjarnan settar í samhengi við aðrar atvinnugreinar. Markmiðið er að auka almenna þekkingu á vægi og stöðu iðnaðar í samfélaginu
- Ársskýrsla SI er ítarleg samantekt á starfseminni og gefur gott yfirlit yfir fjölbreytta og gróskumikla starfsemi
- Á hverju ári gefum við út ýmis sérrit, bæklinga og kynningarefni
„Öll félögin sjö í þjónustuiðnaðinum hafa þegið boð SI um liðsinni við gerð gæðahandbókar fyrir hvert þeirra”

