Grand Hótel Reykjavík
Kynning á orkuáætlun 7.rá verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 14. september kl. 9:00-11:30. Húsið opnar kl. 8:40 með morgunverði fyrir gesti fundarins.
Hilton Nordica Hotel
Ráðstefna um þróun orku- og umhverfismála. Fjórða árið í röð leiðir Driving Sustainability saman fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga sem starfa við og vilja hafa áhrif á þróun samgöngumála. Stjórnendur, áhrifafólk, frumkvöðlar og áhugafólk um samgöngur, orkumál og umhverfismál hittast til að tengjast verkefnum, kynnast nýjungum og hlýða saman á heimsþekkta fyrirlesara spá í samtímann og framtíðina.
Skráning og nánari upplýsingar á ww.drivingsustainability.org
Hilton Nordica Hotel
Haustráðstefna VSF árið 2010 ber yfirskriftina "Verkefnastjórnun án landamæra" eða "Projects across borders". Ráðstefnan, sem haldin verður á ensku, fjallar um þær áskoranir sem verkefnastjórar sem starfa í alþjóðlegu umhverfi standa frammi fyrir. Fyrirlesarar ráðstefnunnar eru jafn ólíkir og þeir eru margir, sérfræðingar úr röðum IPMA, ráðgjafar, háskólakennarar og verkefnastjórar úr ólíkum greinum atvinnulífsins, en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa stýrt eða komið að alþjóðlegum verkefnum.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á www.verkefnastjornun.is
27.10.2010, kl. 12:30 - 17:00
Matvælaiðnaður
Matvæladagur MNÍ 2010
Hilton Reykjavík Nordica Hótel
Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ) stendur fyrir árlegum Matvæladegi miðvikudaginn 27. október, næstkomandi. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár verður Næring, heilsa og fæðubótarefni á villigötum? Brúum bilið með gagnrýndum vísindum og heilbrigðri skynsemi.