Þau átök, sem nú eiga sér stað um skiptingu fjár til samgöngumála, eru engum til góðs. Þjóðin í heild tapar á því að ráðast í óarðbærar framkvæmdir meðan arðbærari verkefni bíða.
Átta verkefni voru tilnefnd af Íslands hálfu til Nýmiðlunarverðlauna Sameinuðu þjóðanna á nýmiðlunarhátið sem haldin var í Háskóla Íslands í gær laugardag. Þau verða nú send áfram í heimskeppni Nýmiðlunarverðlauna Sameinuðu þjóðanna,
www.wsis-award.org sem haldin verður í Túnis í haust.
Samtök iðnaðarins vekja athygli félagsmanna sinna á því að hægt er að fá fréttablað Ríkiskaupa, Kauptíðindi, sent að sér kostnaðarlausu og til fróðleiks um innkaup og fræðslu á opinberum markaði.
Vegleg nýmiðlunarhátíð verður haldin í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, laugardaginn 21. maí frá kl. 13:00 til 18:00. Þar gefst almenningi og fagfólki einstakt tækifæri til að kynna sér bestu afurðir íslenskra nýmiðlunarfyrirtækja um þessar mundir.
Miklar kröfur eru gerðar til þeirra fyrirtækja sem vinna við álversframkvæmdirnar. Við þessa risaframkvæmd er óhætt að fullyrða að öryggis- og umhverfismál eru tekin fastari tökum en ýmsir eiga að venjast úr hinu hefðbundna verktakaumhverfi hér á landi.
Samtök iðnaðarins og Háskólinn í Reykjavík undirrituðu í morgun samning um skipulegar vísindalegar úttektir á íslenska hátækniiðnaðinum.
EJS hlaut á dögunum alþjóðleg verðlaun tölvurisans Dell, EDB Platinum Partner Award, fyrir framúrskarandi árangur í markaðsstarfi fyrirtækisins.
Samtök iðnaðarins og Háskólinn í Reykjavík boða til blaðamannafundar á morgun þar sem Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Bjarki A. Brynjarsson, deildarforseti Tækni- og verkfræðideildar HR, undirrita og kynna samning um gerð og þróun íslensku hátæknivísitölunnar.
Þúsundir viðskiptavina verslunarinnar Fjarðarkaupa í Hafnarfirði tóku þátt í lukkuleik Íslenskra sumardaga sem Samtök iðnaðarins, íslenskir framleiðendur og Fjarðarkaup efndu til dagana 28. apríl til 7. maí síðastliðinn. Nöfn þrettán heppinna viðskiptavina voru dregin úr potti með innsendum lukkumiðum og fór útdrátturinn fram í beinni útsendingu á Bylgjunni 9. maí.
Umsóknarfrestur um starf fræðslu- og framkvæmdastjórja Prenttæknistofunar rennur út í dag.
Framleiðendur byggingavara geta staðið frammi fyrir því að verða að fylgja ákvæðum reglugerðar um viðskipti með byggingavörur og CE – merkja vörur sínar. Samtök iðnaðarins hvetja því framleiðendur byggingavöru til að ganga úr skugga um hvernig ástatt er með þær vörur sem þeir framleiða.
Nýsköpunar- og sprotafyrirtæki eiga oftar en ekki erfitt með að nálgast áhættufjármagn af ýmsum ástæðum. Virkt markaðstorg af því tagi sem hér er lagt til að verði sett á fót getur verið til þess fallið, ef vel tekst til, að bæta að einhverju marki úr þeim vanda.
Kolbrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Starfsafls. Hún tekur við af Maríönnu Traustadóttur sem byggt hefur upp starfsemi Starfsafls.