Forsíðufréttir

30.8.2005 Menntun og fræðsla : Varað við auglýsingum um Didrix spa skóla

Samtök iðnaðarins vara námsfólk og foreldra við auglýsingum um Didrix spa skóla í snyrtifræði og hárgreiðslu. Nám við skólann veitir engin starfsréttindi, skólinn er ekki viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu og starfræksla hans brýtur að líkindum í bága við lög. Lesa meira
 

26.8.2005 Mannvirkjagerð : Vísitala byggingakostnaðar vanmetur raunverulegan byggingakostnað

Fasteignamarkaðurinn hefur mikið verið til umræðu undanfarna mánuði enda hefur fasteignaverð hækkað mikið. Í tengslum við þá umræðu hafa ýmsir bent á að hagur byggingaverktaka sé afar góður um þessar mundir og að markaðsverð á húsnæði sé um 30% yfir kostnaðarverði nýbyggingar. Þessi framsetning er röng og gefur ekki rétta mynd af afkomu í greininni. Lesa meira
 
Björn M. Sigurjónsson

24.8.2005 Prentiðnaður : Nýr framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar

Björn M. Sigurjónsson hóf störf hjá Prenttæknistofnun í byrjun ágúst síðastliðins. Hann mun starfa með fráfarandi framkvæmdastjóra, Inga Rafni Ólafssyni, út ágúst en tekur svo alfarið við taumunum í byrjun september. Lesa meira
 
Frá útskrift í síðasta ÚH verkefni í lok maí sl.

19.8.2005 Nýsköpun og þróun : ÚH-16 hefst í október

Fræðsluverkefnið Útflutningsaukning og hagvöxtur, ÚH, verður haldið í sextánda sinn í haust. Það er ætlað fyrirtækjum sem hafa áhuga á að hefja útflutning, auka útflutning eða treysta tök sín á markaðssetningu erlendis. Lesa meira
 

18.8.2005 Alþjóðlegt samstarf : Evrópufræðasetur tekur til starfa á Bifröst

Evrópufræðasetrið er sjálfstæð stofnun undir sérstakri stjórn með aðsetur á Bifröst. Markmið setursins er að vera vettvangur fyrir rannsóknir og alhliða faglega umræðu fræðimanna og fagaðila á Íslandi um Evrópumál með sérstaka áherslu á málefni sem snerta atvinnulífið. Lesa meira
 

2.8.2005 Alþjóðlegt samstarf : Malta í ESB - hvernig hefur fyrsta árið gengið?

Hádegisfundur með Dr. Roderick Pace, einum helsta sérfræðingi Möltu í samskiptum við ESB, á veitingahúsinu Lækjarbrekku fimmtudaginn 4. ágúst kl. 12.00 -13.00 Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica