Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

Sveinn Hannesson

30.9.2005 Leiðari SI : Skynsamleg ákvörðun

Það er afar ánægjulegt að ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að verja samtals 2,5 milljörðum króna af söluandvirði Landssímans til þess að efla Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins (NSA). Raunar má segja að allur ferillinn við sölu og ráðstöfun söluandvirðis Símans hafi verið afar vel ígrundaður en það lýsir sér best í því að um þetta mál virðist ríkja alger sátt hjá þjóðinni og hefur þó oft verið deilt um smærri mál en þetta.
 
Xplor

30.9.2005 Prentiðnaður : Haustráðstefna Xplor 7. október

Xplor samtökin halda haustráðstefnu þann 7. október nk. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Your NAME is not going to the TRASH“.
 
Peter Ollén

30.9.2005 Prentiðnaður : Námsstefna með Peter Ollén

Námstefna með Peter Ollén 6. október kl. 17-21 í húsi Verslunarinnar, efstu hæð.
 
Sjávarútvegssýningin 2005

29.9.2005 Markaðsmál : Á Íslensku sjávarútvegssýningunni

Íslenska sjávarútvegssýningin, sem haldin var með glæsibrag í Smáranum dagana 7. til 10 þessa mánaðar, var fjölsótt og þótti takast með ágætum. Hátæknifyrirtækið Marorka hlaut verðlaun fyrir bestu nýju framleiðsluna á sýningunni fyrir orkustjórnunarkerfið Maren 2.
 

28.9.2005 Nýsköpun og þróun : Ný hugsun og aðferðir

Áhugaverðir atburðir um klasasamstarf og straumlínuhugsun í nýsköpunarstarfi 6. og 7. október
 
Úrslit ljósmyndasamkeppni

28.9.2005 Þjónustuiðnaður : Úrslit í ljósmyndasamkeppni Ljósmyndarafélags Íslands og Samtaka iðnaðarins

Lárus Karl Ingason ljósmyndari hlaut fyrstu verðlaun í ljósmyndasamkeppni, sem haldin var í tengslum við ráðstefnuna Frá hugmynd til markaðar.
 
Hreinn ávinningur

27.9.2005 Orku- og umhverfismál : Ráðstefnan Hreinn ávinningur

Ráðstefnan Hreinn ávinningur – hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi? verður haldin á Grand Hótel á morgun, miðvikudag.
 
Dagar íslensks prentiðnaðar 2005

26.9.2005 Prentiðnaður : Nauðsynlegt að setja skýrar leikreglur fyrir fjölmiðla

Það er nauðsynlegt að fjölmiðlar hafi skýrar leikreglur til að fara eftir, sagði Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og aðstoðarframkvæmdastjóri Time Warner, m.a. í viðtali sem sýnt var á ráðstefnu SI sl. fimmtudag.
 
gsi-Merki Gæðastjórnunar

21.9.2005 Gæðastjórnun og rekstur : Hallærisgóðæri!

Á þessum ágætu góðæristímum ætla margir sér um of og taka ekki tillit til þess aukna kostnaðar sem fylgir eftirvinnu þegar þeir bjóða í verk eða verðleggja vinnu sína að öðru leyti.
 

19.9.2005 Starfsskilyrði iðnaðar : Atvinnuleysi minnkar hratt

Atvinnuleysi á Íslandi hefur minnkað hratt það sem af er árinu og mælist nú aðeins 1,8%.
 
BB verkefni

16.9.2005 Málmiðnaður : BB-verkefninu að ljúka

Tilraunaverkefni sem á að auka vinnuvernd og bæta umgengni í fyrirtækjum hefur sannað ágæti sitt.
 

15.9.2005 Málmiðnaður : Ný málmsuðubraut í Borgarholtsskóla

Um næstu áramót mun BHS bjóða nýtt nám í málmsuðu sem tekur mið af evrópskum gæðakröfum. Nemendur sem ljúka því öðlast alþjóðleg réttindi.
 

14.9.2005 Málmiðnaður : Framleiðniverkefni málmiðnaðarins

Málmur, samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, Samtök iðnaðarins og Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins hafa tekið höndum saman um að vinna að aukinni framleiðni í greininni.
 
22. og 23. september 2005

9.9.2005 Markaðsmál : Allt stefnir í metaðsókn á Daga íslensks prentiðnaðar!

Það stefnir í metaðsókn á alla viðburði Daga íslensks prentiðnaðar 22. og 23. september næstkomandi. Það fer því hver að verða síðastur að tryggja sér miða. Tekið er við skráningum hér á vefnum alla helgina!

 
Merki Ljósmyndarafélags Íslands

9.9.2005 Markaðsmál : Ljósmyndasamkeppni: Pappír í allri sinni mynd

Í tengslum við Daga íslensks prentiðnaðar efna Ljósmyndarafélag Íslands og SI til samkeppni meðal félagsmanna um frumlegustu útfærslu á ljósmynd þar sem þemað er pappír í allri sinni mynd.
 
Hreinn ávinningur

9.9.2005 Prentiðnaður : Umhverfismál prentfyrirtækja til fyrirmyndar

Það hefur víða vakið athygli hvernig íslensk prentfyrirtæki hafa tekið forystu í umhverfismálum atvinnulífsins.
 

9.9.2005 Málmiðnaður : Verða skipaviðgerðir aðeins hjá vottuðum fyrirtækjum?

Ef stefna ESB, sem birtist í LeaderSHIP 2015, verður að alþjóðareglu er svarið játandi. Hvaða afleiðingar hefur það?

 
GSI - Merki gæðastjórnunar

8.9.2005 Málmiðnaður : Gæðastjórnun í málminum

Góð reynsla fyrirtækja í málmiðnaði af því að taka upp gæðakerfi Samtaka iðnaðarins.
 
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

8.9.2005 Nýsköpun og þróun : Nýsköpunarsjóður efldur

Ríkisstjórnin tilkynnti síðast liðinn þriðjudag hvernig söluandvirði Símans verður varið. Meðal þeirra verkefna sem fé er ráðstafað til er uppbygging nýsköpunar í atvinnulífinu með allt að 2,5 milljarða framlagi til Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins fram til ársins 2009. Samtök iðnaðarins fagna þessari ákvörðun.
 

7.9.2005 Menntun og fræðsla : Námsbrautir í matstækni við HR ? Kynningarfundur laugardaginn 10. september kl. 14.

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík býður upp á þrjár námsbrautir í matstækni. Um er að ræða hagnýtt og sérhæft nám sniðið fyrir sérfræðinga og þá sem hafa hug á að starfa á sviði tjónamats fasteigna, fasteignamats vegna viðhalds eða lánshæfismats vegna fasteignaviðskipta.

 
Rik Pieters

7.9.2005 Prentiðnaður : Áhugaverð námstefna um auglýsingar í prentmiðlum

Hinn heimskunni hollenski fræðimaður Rik Pieters heldur fyrirlestur á Íslandi á námstefnu SAU og Birtingahússins á Hótel Loftleiðum frá kl. 9 til 12 fimmtudaginn 8. september.
 

6.9.2005 Dagar íslensks prentiðnaðar 2005 : Þátttökuskráning

Athugið að sætafjöldi er takmarkaður á ráðstefnu og námstefnur. Frestur til skráningar rennur út mánudaginn 20. september næstkomandi.
 

6.9.2005 Dagar íslensks prentiðnaðar : Hátíðinni hefur verið aflýst

Stórhátíð á Broadway föstudagskvöldið 23. september fyrir fagfólk, stjórnendur og starfsfólk prent-, auglýsinga-, almannatengsla-, ljósmynda- og kvikmyndafyrirtækja auk fjölmiðla, Ímark-félaga og annarra úr hinni fjölbreyttu flóru upplýsinga- og fjölmiðlagreina á Íslandi hefur verið aflýst.

 

6.9.2005 Dagar íslensks prentiðnaðar : Pappír í allri sinni mynd

Verðlaunasamkeppni meðal ljósmyndara í SI

 

6.9.2005 Dagar íslensks prentiðnaðar : Sigur og sérstaða

Námstefnur föstudaginn 23. september 2005

 

6.9.2005 Dagar íslensks prentiðnaðar : Frá hugmynd til markaðar

Ráðstefna á heimsmælikvarða fimmtudaginn 22. september 2005 fyrir fagfólk, stjórnendur og markaðsfólk

 
Dagar íslensks prentiðnaðar

6.9.2005 Dagar íslensks prentiðnaðar : Dagar íslensks prentiðnaðar 22. og 23 september

Samtök iðnaðarins, í samvinnu við prentsmiðjur innan SI, Prenttæknistofnun, Félag bókagerðarmanna, Ljósmyndarafélag Íslands, Ímark og fleiri í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum, efna til "Daga íslensks prentiðnaðar" 22. og 23. september næstkomandi undir yfirskriftinni „Frá hugmynd til markaðar.“
 
Hreinn ávinningur

2.9.2005 Orku- og umhverfismál : Ráðstefnan Hreinn ávinningur

Ráðstefna um umhverfisstarf fyrirtækja verður haldin 28. september á Grand hótel.
 
bio-helix

1.9.2005 Líftækni : Ráðstefna um sænska og íslenska líftækni

Sænskir og íslenskir líftæknifrömuðir, ásamt fjárfestum og samtökum líftæknifyrirtækja, koma saman til ráðstefnu í höfuðstöðvum Íslenskrar erfðagreiningar mánudaginn 5. september.
 
Ísland og ESB

1.9.2005 Alþjóðlegt samstarf : Meirihluti hlynntur aðild að ESB

Ný könnun sem IMG Gallup hefur gert fyrir Samtök iðnaðarins sýnir litlar breytingar á afstöðu Íslendinga til aðildar að Evrópusambandinu. Þetta er fyrsta könnunin sem gerð er eftir að ný stjórnarskrá ESB var felld í þjóðaratkvæðagreiðslu í Frakklandi og Hollandi.
 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.