Forsíðufréttir

Togarinn Þórunn Sveinsdóttir VE401

31.10.2005 Málmiðnaður : Skipaiðnaðurinn er hátæknigrein

Margir muna vel þá tíma þegar hér á landi voru öflugar skipasmíðastöðvar sem afgreiddu hvert happafleyið á fætur öðru til íslenskra útgerða en nú er öldin önnur. Lesa meira
 

28.10.2005 Líftækni : SÍL ályktar um nýsköpunarmál á aðalfundi sínum

Fjármögnun nýsköpunar var efst á baugi á aðalfundi Samtaka íslenskra líftæknifyrirtækja. Fundurinn fagnaði aukinni áherslu á nýsköpun af hálfu stjórnvalda en telur jafnframt að margt sé enn óunnið í þeim efnum. Lesa meira
 
Kroto-C60

27.10.2005 Menntun og fræðsla : Nóbelsverðlaunahafi leiðbeinir íslenskum grunnskólanemum

Um 70 nemendur Hlíðaskóla og Salaskóla hlýddu á sir Harry Kroto, Nóbelsverðlaunahafa, í Háskólanum í Reykjavík í gær. Kroto leiddi þau um undraheima efnafræðinnar. Lesa meira
 
Frá hugmynd til markaðar - merki 1

27.10.2005 Prentiðnaður : Frá hugmynd til markaðar

Í tilefni Daga íslensks prentiðnaðar héldu Samtök iðnaðarins viðamikla ráðstefnu, Frá hugmynd til markaðar, í Salnum, Kópavogi, 22. september sl. þar sem fjallað var um þau tækifæri sem felast í beinni markaðssókn og nýjungar í miðlun upplýsinga Lesa meira
 
Vegagerðin

26.10.2005 Mannvirkjagerð : Vegagerðin snýst gegn kennitöluflakki

Í nýgengu útboði Vegagerðarinnar á áætlunarakstri á sérleyfisleiðum er í fyrsta sinn beitt sérstöku ákvæði til að verjast/snúast gegn kennitöluflakki. SI fagna þessu og telja að þetta breytta verklag Vegagerðarinnar geti skipt sköpum til að stemma stigu við ómældu tjóni sem kennitöluflakkarar baka íslensku atvinnulífi og heiðarlegum þátttakendum á markaði. Lesa meira
 
Baldvin B Ringsted

26.10.2005 Menntun og fræðsla : Efling verkmenntunar sé í samræmi við þarfir fyrirtækja

Í grein í Mbl. í dag, „Þunn þrenning“, minnir Baldvin Ringsted hjá VMA á mikilvægi þess að verkmenntun sé efld í samræmi við þróun atvinnulífsins. Stjórnmálaflokkar sem vilja efla verkmenntun hljóta að þurfa að gera það í samstarfi við skólana, atvinnulífið og hagsmunasamtök. Annað er hjóm eitt. Lesa meira
 

25.10.2005 Mannvirkjagerð : Haustþing Menntafélags byggingariðnaðarins

Haustþing Menntafélags byggingariðnarins verður haldið fimmtudaginn 27. okt. nk. undir yfirskriftinni þarfir – þekking – þjálfun. Lesa meira
 

24.10.2005 Alþjóðlegt samstarf : Fjárfestingartækifæri í Austur-Evrópu og Mið-Asíu - hlutverk Þróunarbanka Evrópu

Fundur á Radisson SAS Hótel Sögu, 27. október 2005, þar sem fjallað verður um fjárfestingartækifæri í Austur-Evrópu og Mið-Asíu, hlutverk EBRD, nýjustu þróun á sviði fjármála og þjónustu bankans á þessu svæði. Lesa meira
 
Líftækni

21.10.2005 Líftækni : Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja halda aðalfund

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður fjallað um fjármögnun nýsköpunar á Íslandi á fundinum 26. október. Lesa meira
 
3jastodin

21.10.2005 Upplýsingatækni : Ný stjórn Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja

Ný stjórn Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja (SUT) var kosin á aðalfundi sem haldinn var í morgun Lesa meira
 
S&S

20.10.2005 Málmiðnaður : Hópferð á málmsuðusýninguna Schweissen & Schneiden

Um miðjan september sl. fór vaskur hópur á vegum Samtaka iðnaðarins og Málmsuðufélags Íslands á hina miklu og viðurkenndu málmsuðusýningu Schweissen & Schneiden í Essen í Þýskalandi. Lesa meira
 
Dagur byggingariðnaðarins í Hafnarfirði 2005

19.10.2005 Markaðsmál : Almenn ánægja með Dag byggingariðnaðarins í Hafnarfirði

Almenn ánægja er með Dag byggingariðnaðarins í Hafnarfirði sem haldinn var síðastliðinn laugardag og ljóst af viðbrögðum almennings að mikill áhugi er á lóðum í Hafnarfirði. Lesa meira
 
Landssamband bakarameistara

18.10.2005 Matvælaiðnaður : Októberfest - þýskir dagar í bakaríum

Landssamband bakarameistara efndi til Októberfest þýskra daga í bakaríum nú í mánuðinum og fékk í lið með sér Þýsk-íslenska viðskiptaráðið og hráefnabirgja. Lesa meira
 

17.10.2005 Alþjóðlegt samstarf : Hnattvæðing og þekkingarþjóðfélag; áhrif á íslenskt samfélag?

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála býður til málþings á morgun um áhrif hnattvæðingar og þekkingaþjóðfélags á Íslandi í tilefni af útkomu bókarinnar Hnattvæðing og þekkingarþjóðfélag. Lesa meira
 
Rannveig Rist og Jón Steindór Valdimarsson

14.10.2005 Matvælaiðnaður : Alcan á Íslandi fær Fjöregg MNÍ 2005

Fjöregg MNÍ 2005 var veitt Alcan á Íslandi á Matvæladegi MNÍ í dag fyrir heilsuátak Alcan sem tekur til margra þátta sem skipta sköpum um vellíðan fólks. Lesa meira
 
Dagur byggingariðnaðarins í Hafnarfirði 2005

14.10.2005 Markaðsmál : Það dregur til tíðinda á íslenskum fasteignamarkaði

Dagur byggingariðnaðarins í Hafnarfirði verður haldinn laugardaginn 15. október næstkomandi. Munu byggingaverktakar, fasteignasalar, fjármálastofnanir og Hafnarfjarðarbær taka þátt í deginum með ýmsu móti auk sölu- og þjónustuaðila í byggingariðnaði. Lesa meira
 
Merki Samtaka atvinnulífsins

14.10.2005 Orku- og umhverfismál : Er allt á hreinu í þínu fyrirtæki ?

Fundur um áhættugreiningu og áhættumat verður haldinn hjá Samtökum atvinnulífsins 26. október. Veittar verða almennar upplýsingar um aðferðarfræðina sem liggur að baki áhættugreiningu og áhættumati, tilganginn, og tilgreint hvernig unnt sé að nýta þessa þætti til að ná betri árangri í rekstri fyrirtækja.

Lesa meira
 
Samtök sprotafyrirtækja

12.10.2005 Sprotafyrirtæki : Aðalfundur Samtaka sprotafyrirtækja

Aðalfundur Samtaka sprotafyrirtækja verður haldinn föstudaginn 21. október kl 15:00, í Húsi Nýherja að Borgartúni 37. 1. hæð. Fundurinn er aðeins opinn félagsmönnum í SI/SSP. Lesa meira
 
Hreinn ávinningur

11.10.2005 Orku- og umhverfismál : Hreinn ávinningur - Hvað er að græða á umhverfisstarfi fyrirtækja?

Ráðstefna um umhverfisstarf í fyrirtækjum „Hreinn ávinningur hvað er að græða á umhverfisstarfi fyrirtækja?“ var haldin 28. september síðastliðinn. Í tilefni ráðstefnunnar var gefinn út bæklingur um helstu valkosti sem í boði eru hvað varðar vottun umhverfisstarfs. Að ráðstefnunni stóðu Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins, Umhverfisfræðsluráð og ASÍ. Ráðstefnan var vel sótt og sköpuðust líflegar umræður um kosti og galla vottunar, valkosti fyrirtækja og eftirlit opinberra aðila. Lesa meira
 
MNÍ

10.10.2005 Matvælaiðnaður : Matvæladagur MNÍ 2005

Matvæla og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ) boðar til Matvæladags, föstudaginn 14.október 2005 kl. 12:30-17, á Grand Hótel Reykjavík. Matvæladagurinn er árviss viðburður, sem haldinn hefur verið frá 1993, og er því haldinn í þrettánda sinn. Lesa meira
 
CIPA

7.10.2005 Alþjóðlegt samstarf : Viðskiptakaupstefna Kína og Norður-Evrópu

Viðskiptakaupstefna Kína og Norður-Evrópu verður haldin í Stokkhólmi á 1000 fermetra sýningasvæði í tengslum við Tæknisýningu Norðurlanda 2005. Lesa meira
 
Háskólinn í Reykjavík

6.10.2005 Menntun og fræðsla : Frumgreinasvið HR - Nýskráningu lýkur 20. október

Háskólinn í Reykjavík auglýsir eftir iðnmenntuðu fólki í nám á frumgreinasviði (áður frumgreinadeild THÍ). Lesa meira
 
Hreinn ávinningur

5.10.2005 Orku- og umhverfismál : Fjölsótt ráðstefna um umhverfisstarf fyrirtækja

Fjölsótt var á ráðstefnu um umhverfisstarf í fyrirtækjum „Hreinn ávinningur – hvað er að græða á umhverfisstarfi fyrirtækja?“ sem haldin var 28. september síðastliðinn. Lesa meira
 
SI

4.10.2005 Fréttir af SI : Helstu verkefni stjórnar SI veturinn 2005-2006

Stjórn SI hefur undanfarið unnið að því að móta forgangsverkefni sem leggja ber megináherslu á í starfi Samtaka iðnaðarins veturinn 20052006. Á lista stjórnarinnar eru rúmlega 30 verkefni sem stjórnin hefur flokkað og forgangsraðað eftir mikilvægi fyrir iðnaðinn í heild. Lesa meira
 

3.10.2005 Menntun og fræðsla : SI vilja sameina fræðslumiðstöðvar iðnaðarins

Samtök iðnaðarins hafa frá upphafi viljað auka hagræðingu og endurskipulagningu í endurmenntunar og fræðslustarfi iðnaðarins. Sá vilji kemur fram í stefnu Samtakanna og fyrirtæki hafa í vaxandi mæli stutt slíka þróun. Á ráðgjafaráðsfundi Samtaka iðnaðarins í lok september var fjallað um fyrirhugaða sameiningu fræðslumiðstöðva iðnaðarins. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica