Forsíðufréttir

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, og Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri Íþrótta- og sýningahallarinnar hf

30.11.2005 Markaðsmál : Fullkomið fjölnota hús fyrir frjálsar íþróttir, sýningar og ráðstefnur

Nýbygging Íþrótta- og sýningahallarinnar í Laugardal var formlega tekin í notkun í gær að viðstöddum gestum. Með tilkomu hennar er Laugardalshöllin alls rúmir 16 þúsund fermetrar að flatarmáli og býður eina fullkomnustu aðstöðu á Íslandi fyrir íþróttakeppni og æfingar, sýningahald, ráðstefnur, fundi, tónleika, árshátíðir og ýmsa mannfagnaði. Lesa meira
 
Endurvinnanlegar umbúðir

30.11.2005 Orku- og umhverfismál : Álagning úrvinnslugjalds á umbúðir

Um næstu áramót verður lagt úrvinnslugjald á umbúðir úr pappa, pappír og plasti. Málið varðar þá sem framleiða umbúðir, flytja inn vörur og hráefni eða flytja út vörur í pappa-og plastumbúðum. Lesa meira
 
Evrópumaður ársins 2005

25.11.2005 Alþjóðlegt samstarf : Sveinn Hannesson Evrópumaður ársins 2005

Á aðalfundi Evrópusamtakanna í gær var Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri SI, útnefndur Evrópumaður ársins en þetta er í þriðja sinn sem Evrópusamtökin veita þessa viðurkenningu. Lesa meira
 

25.11.2005 Lögfræðileg málefni : Málþing um Starfsmannaleigur

Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst, heldur í samvinnu við Vinnumálastofnun og Vinnuréttarfélag Íslands, ráðstefnu um starfsmannaleigur föstudaginn 2. desember nk., kl. 13:00 – 16:30. Ráðstefnan verður haldin í Hriflu, á Bifröst. Lesa meira
 

21.11.2005 Orku- og umhverfismál : Hagnaður fyrirtækja undirstaða betra umhverfis

Umhverfisþing árið 2005 fjallar um sjálfbæra þróun og í ræðu sinni við upphaf þingsins vék Þorgeir Baldursson, varaformaður SA, að því að hagnaður fyrirtækja væri undirstaða sjálfbærrar þróunar, nokkuð sem gleymdist oft að nefna í umræðu um umhverfismál og sjálfbæra þróun. – umræðu sem væri oft einlit. Lesa meira
 
Iceland Explode icon

18.11.2005 Nýsköpun og þróun : Hátæknifyrirtækin eru í hættu

Á fjölmennum fundi Samtaka iðnaðarins í morgun um stöðu hátækniiðnaðar á Íslandi kom fram að uppbygging þessa iðnaðar hér á landi er í mikilli hættu. Ljóst er að hann mun standa í stað eða dragast saman verði ekki að gert. Kallað var eftir stefnumótun af hálfu stjórnvalda í málefnum hátækni- og sprotafyrirtækja. Lesa meira
 
Aðvörun

16.11.2005 Lögfræðileg málefni : Varhugavert að nýta sér þjónustu starfsmannaleiga

Samtök iðnaðarins vekja athygli félagsmanna sinna á afar óljósri stöðu skattamála hjá starfsmannaleigum og ráðleggja félagsmönnum sínum eindregið að ráða frekar fólk til starfa fremur en að nota starfsmannleigur. Lesa meira
 
Endurvinnsla

16.11.2005 Orku- og umhverfismál : Úrvinnslugjald á umbúðir

Samtök iðnaðarins og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu boða til morgunverðarfundar um álagningu úrvinnslugjalds á umbúðir úr pappa, pappír og plasti miðvikudaginn 23. nóvember frá 8:30 til 10:00 á Grand Hótel. Lesa meira
 
Iceland Explode icon

15.11.2005 Nýsköpun og þróun : Íslenskur hátækniiðnaður: Að vera eða fara - þarna er efinn!

Samtök iðnaðarins efna til morgunverðarfundar til þess að ræða stöðu hátækniiðnaðar á Íslandi föstudaginn 18. nóvember frá kl. 8:30 til 10:00 á Hótel Nordica, sal i. Lesa meira
 

15.11.2005 Menntun og fræðsla : Smáraskóli sigraði í LEGO keppni

Um síðustu helgi var í fyrsta sinn haldin hér á landi keppni meðal 10 til 16 ára barna í að leysa þrautir með vörum frá LEGO. Nemendur í Smáraskóla í Kópavogi sigruðu í keppninni. Lesa meira
 

10.11.2005 Gæðastjórnun og rekstur : Hættuleg vara á markaði

Það er afar áríðandi að framleiðendur vöru geri sér grein fyrir lagaskyldu sinni en ekki síður því að upplýsingar til neytenda um hættulega vöru á markaði skapar ekki neikvæða ímynd af framleiðenda vöru heldur þvert á móti. Lesa meira
 
Ásprent Stíll

8.11.2005 Prentiðnaður : Kraftmikið fyrirtæki í mikilli sókn

Ásprent Stíll á Akureyri er ört vaxandi fyrirtæki á sviði prentlausna og auglýsinga og er í hópi stærstu fyrirtækja landsins á sínu sviði. Fyrirtækið fagnar tveggja ára afmæli um þessar mundir en sögu þess má þó rekja mun lengra aftur í tímann því að það á m.a. rætur að rekja til Prentverks Odds Björnssonar (POB) sem var ein virtasta prentsmiðja landsins á öldinni sem leið. Lesa meira
 

7.11.2005 Orku- og umhverfismál : Málþing um umbúðaúrgang frá heimilum

Málþing um móttöku pappa- og plastumbúða frá heimilum verður haldið á Grand hótel þann 14. nóvember. Lesa meira
 
Verk og vit 2006

7.11.2005 Markaðsmál : Sýningin Verk og vit 2006

Stórsýningin Verk og vit 2006 verður haldin í nýju Íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal dagana 16.-19. mars 2006. Á sýningunni verður megináhersla lögð á fagmennsku, aukna þekkingu og tækninýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð. Lesa meira
 
Nr_01b_Logo_Titt_val_RGB_JPEG

4.11.2005 Markaðsmál : Íslenskir dagar í Fjarðarkaupum 3. til 12. nóvember

Íslenskir dagar standa yfir í Fjarðarkaupum frá fimmtudeginum 3. nóvember til laugardagsins 12. nóvember. Dagarnir eru hluti af landsátaki Samtaka iðnaðarins og fyrirtækja innan samtakanna undir kjörorðinu „Þitt val skiptir máli“ sem hófst í ágúst í fyrra. Lesa meira
 
Prixmobius2006

1.11.2005 Upplýsingatækni : Norrænu Möbius verðlaunin 2006

Norrænu Möbius verðlaunin verða veitt í Media Centre Lume / University of Art & Design í Helsinki í janúar 2006. Verðlaunin eru veitt fyrir lausnir á sviði gagnvirkrar tækni, miðlunar og menningar. Lesa meira
 

1.11.2005 Orku- og umhverfismál : Samkeppni engin á raforkumarkaði

Veruleg verðhækkun varð á raforkuverði til allmargra iðnfyrirtækja í kjölfar markaðsvæðingar raforkusölu um síðustu áramót. Enn sjást engin merki samkeppni á raforkumarkaði, hvorki í betra verði né aukinni þjónustu. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica