Aðalfundur Iðnskólafélagsins var haldinn í Iðnskólanum í Reykjavík 1. desember 2005.
Fyrir skömmu undirrituðu forsvarsmenn Samtaka iðnaðarins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samiðnar, Félags bókagerðarmanna og MATVÍSS viljayfirlýsingu um stofnun nýs félags um símenntun í iðnaði.
Prentsmiðja Hafnarfjarðar er ein örfárra prentfyrirtækja sem konur reka hér á landi og þegar komið er inn í þetta gamalgróna fyrirtæki verður þess strax vart að þar svífur notalegur andi yfir vötnum.
Á einu ári hefur verðmæti iðnaðarframleiðslu til framleiðenda dregist saman um tæp 4%. Frá fjórða ársfjórðungi 2003 hefur verðmætið dregist saman um 1,3%. Á sama tíma hafa laun hækkað um 12,5% og innlendur kostnaður, mældur með vísitölu neysluverðs, hækkað um 9,5%.
Franch Michelsen, úrsmíðameistari að Laugavegi 15, tók nýlega við Njarðarskildinum sem er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar og íslenskrar verslunar.
Nýverið náðu Bechtel og undirverktakar á Reyðarfirði þeim áfanga að vinna í eina milljón klukkustunda án þess að vinnuslys yrði.
Eins og alþjóð veit eru flest lög afgreidd á Alþingi í tveim stuttum lotum sem helst má líkja við uppþot. Það fyrra er í maí við og miðað við að þingmenn komist heim í sveitina áður en sauðburður hefst fyrir alvöru. Á haustin er lítið afgreitt af lagafrumvörpum fyrr en í byrjun jólaföstu en þá verður annað uppþot í þinginu þegar langþráð jólafrí þingmanna er í sjónmáli.
Nýlega var gefin út skýrsla iðnaðarráðherra um raforkumálefni. Þar eru rakin áhrif breytinga á raforkulögum um síðustu áramót og lítið gert úr þeim hækkunum sem iðnfyrirtæki hafa fundið fyrir.
Samtök iðnaðarins munu halda áfram að leggja sitt af mörkum til að stuðla að röskum framgangi gæðastjórnunar. Áfram verða í boði námskeið í gæðastjórnun við verklegar framkvæmdir og gerð öryggis- og heilbrigðisáætlunar.
Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um úrvinnslugjald sem fela í sér að frá áramótum verður lagt úrvinnslugjald á allar umbúðir úr pappa, pappír og plasti sem fara á markað.
Stjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk undir nafninu UT-dagurinn.
Í tilefni þess að Hjartavernd og UVS, sem eru meðal stærstu félaga í Samtökum íslenskra líftæknifyrirtækja, þurftu nú um mánaðamótin að grípa til þess ráðs að segja tugum starfsmanna sinna upp störfum, hefur stjórn SÍL sent frá sér ályktun.
Umsagnaraðilar styðja þá breytingu að faggiltir aðilar komi að eftirliti samkvæmt lögunum. Mikilvægt er að mörkuð verði sú stefna að faggiltir aðilar sem starfa á samkeppnismarkaði taki í meira mæli en nú er að sér að fylgjast með því að farið sé að lögum og reglum og að samtímis sé dregið úr umfangi opinbers eftirlits.
Vakin er athygli á nýjum reglugerðum Umhverfisstofnunar um öryggisblöð, rokgjörn lífræn efni, gróðurhindrandi efni og efni sem eyða ósonlaginu. Einnig er vakin athygli á reglugerð um öryggis- og heilbrigðisstarf á vinnustöðum sem er í undirbúningi.
Í fyrra tóku bakarar í Landssambandi bakarameistara upp á þeirri nýbreytni að baka sérstaka köku í tilefni fullveldisdagsins 1. desember. Viðtökur voru framúrskarandi góðar. Fullveldiskakan verður aftur í boði í bakaríum innan Landssambands bakarameistara í ár frá 1. desember og fram eftir mánuðinum.
Niðurstöður könnunar Bókasamband Íslands um prentstað íslenskra bóka, sem birtust í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2005, sýna m.a. að hlutfall prentunar innanlands hefur aukist um 1,5% frá síðasta ári. Þetta er sérstaklega vel af sér vikið hjá íslenskum prentfyrirtækjum, ekki síst þegar tekið er tillit til ofurgengis íslensku krónunnar sem gerir samkeppni íslenskra prentsmiðja við erlendar enn erfiðari en ella.