Beint í leiðarkerfi vefsins.
Íslandsmót iðnnema 2006 fer fram í Kringlunni á Degi iðn- og starfsmenntunar föstudaginn 31. mars. Keppt verður í níu iðngreinum; málmsuðu, dúklagningu, hársnyrtingu, rafvirkjun, málun, trésmíði, snyrtingu, múrverki og pípulögnum. Að auki munu nokkrir iðn- og starfsmenntaskólar kynna námsframboð sitt. Í lok dags verða úrslit mótsins kynnt og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra veitir verðlaun.
Lesa meira
Á síðasta ári gátu stærri notendur valið af hverjum þeir keyptu rafmagn og frá og með síðustu áramótum geta allir keypt rafmagn af þeim sem þeir kjósa. Á morgunverðarfundi sem SI efna til þriðjudaginn 28. mars verður leitað svara við spurningum um hvaða áhrif þessar breytingar muni hafa á raforkuverð í framtíðinni.
Lesa meira
Aðalfundur Landssambands bakarameistara, haldinn 4. mars 2006, mótmælir harðlega þeirri miklu hækkun sem orðið hefur á verði á raforku til bakaría frá því ný orkulög tóku gildi.
Lesa meira
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar á ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja voru kynntar í sjöunda sinn þriðjudaginn 7. mars. Úrtakið var tæplega 8500 manns úr þjóðskrá á aldrinum 15 til 75 ára.
Opinn hádegisverðarfundur verður haldinn þriðjudaginn 7. mars á Grand Hótel þar sem kynntar verða athyglisverðar niðurstöður mælinga á ánægju viðskiptavina á Íslandi og í Evrópu árið 2005.
Lesa meira