Árlega standa Samtök iðnaðarins og Félag bókagerðarmanna að kjarakönnun meðal starfsfólks í prentiðnaði en IMG Gallup annast framkvæmd könnunarinnar samkvæmt samningi við SI og FBM.
Lesa meira
Samtök iðnaðarins stórefla Evrópurannsóknir á Íslandi með því að gerast bakhjarl Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands.
Lesa meira
Bretinn Michael Thomson fjallar um stöðu hönnunar á Íslandi í alþjóðlegum samanburði og þau tækifæri sem hönnuðir standa frammi fyrir í dag. Á fundinum verða einnig skoðaðar niðurstöður könnunar Hönnunarvettvangs er varða starfsumhverfi hönnuða.
Lesa meira
Ljósmyndarafélag Íslands fagnaði 80 ára afmæli sínu um sl. helgi m.a. með fagstefna undir heitinu „Augnablik til framtíðar“ en á henni komu fram þekktir ljósmyndarar frá ýmsum löndum sem sýndu og sögðu frá myndum sínum.Lesa meira
Tungutæknisetur, sem er samstarfsvettvangur Málvísindastofnunar Háskóla Íslands, Orðabókar Háskólans og tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, gengst fyrir ráðstefnunni "Íslensk tungutækni 2006" þriðjudaginn 23. maí kl. 13:00-17:30.
Lesa meira
Háskólinn í Reykjavík, SVÞ og Samtök iðnaðarins standa að morgunverðarfundi með Nigel Slack í Háskólanum í Reykjavík 3. hæð, miðvikudag 17. maí kl. 8.30-10:00. Verð: 3.000 kr., léttur morgunverður innifalinn.
Lesa meira
Á vel sóttum ráðgjafaráðsfundi, sem Samtök iðnaðarins héldu í gær, var fjallað um Evrópumál, og spurt hvort tímabært sé fyrir Ísland að taka upp evru og / eða að ganga í ESB. Að loknum framsöguerindum fóru fram málefnalegar umræður í pallborði með fyrirspurnum úr sal.Lesa meira
Norræna nýsköpunarmiðstöðin kynnir nýtt áherslusvið, sem er Umhverfistækni. Óskað er eftir umsóknum, fyrir 16. júní, með verkefnishugmyndum sem miða að því að styrkja nýsköpun, þróun, notkun og útflutning á umhverfistækni.
Lesa meira
Ljósmyndarafélag Íslands fagnar um þessar mundir 80 ára afmæli sínu. Af því tilefni verður haldin fagstefna og afmælishátíð á Grand Hóteli helgina 13.-14. maí undir heitinu „Augnablik til framtíðar“. Dagskráin verður tvíþætt. Á laugardeginum verður fagstefna ætluð fagljósmyndurum en á sunnudeginum verður afmælishátíðin opin öllu áhugafólki um ljósmyndun.
Lesa meira
IÐAN - fræðslusetur ehf. hefur hafið starfsemi. Hlutverk IÐUNNAR er að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í byggingar-, málm-, prent- og matvælaiðnaði. IÐAN – fræðslusetur ehf. verður til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu.
Lesa meira
Matvælaöryggisstofnun Evrópu hefur gert ítarlega úttekt á niðurstöðum nýlegrar langtímarannsóknar á öryggi Aspartams. Niðurtöðurnar voru kynntar á blaðamannafundi í dag.
Lesa meira
Dr. Patrick D. Eagan hélt nýlega fyrirlestur í Húsi atvinnulífsins undir yfirskriftinni Viltu bæta samkeppnisstöðuna ? Fram kom í máli hans að innan fyrirtækja er tilhneiging til að setja umhverfismálin í sér deild en til að eitthvað miði áfram þurfi að flétta þau inn í alla daglega starfsemi fyrirtækisins. Umhverfismál snúast um fjárfestingar, gæði, framleiðni og annað sem nú þegar er unnið með í fyrirtækjum. Allt stefnir þetta að sama marki sem er aukin þekking og vitund starfmanna og betri nýting tíma og hráefna.
Lesa meira
Í tilefni af Evrópudeginum býður Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi, í samstarfi við Euro Info skrifstofuna, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, til morgunverðarfundar um evruna mánudaginn 8. maí nk. á Nordica Hótel kl. 8:15 10:00.
Lesa meira