Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

31.1.2007 Skráðu þig hér : SKRÁNINGARFORM FYRIR KEPPENDUR Á ÍSMÓT

Samtök iðnaðarins efna til ráðstefnunnar SKÓLAR Í MÓTUN á Menntadegi iðnaðarins, fimmtudaginn 15. febrúar frá 9:00 til 12:00 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal.
 
Hafnarfjörður

31.1.2007 Orku- og umhverfismál : Hagsæld í Hafnarfirði

Samtök atvinnulífsins og Alcan á Íslandi efna til stefnumóts fyrirtækja í Hafnarfirði föstudaginn 2. febrúar frá kl. 7:45-10:00 í Hafnarborg. Þar verður rætt um framtíðarþróun atvinnulífs í Hafnarfirði, stækkun álversins í Straumsvík og fyrirhugaða kosningu Hafnfirðinga um nýtt deiliskipulag við álverið.
 
Framtíðin er í okkar höndum

30.1.2007 Markaðsmál : Áhugaverðar tillögur þingflokka á SPROTAÞINGI 2007 - Þátttökuskráning og val á þingnefnd

Alls þrettán tillögur bárust frá þingflokkunum til umfjöllunar og afgreiðslu á væntanlegu Sprotaþingi 2007 föstudaginn 2. febrúar næstkomandi. Skráning stendur yfir hér á vefsetri SI og er þátttakendum boðið að óska eftir sæti í tiltekinni þingnefnd.
 

30.1.2007 Markaðsmál : SPROTAÞING 2007 - Tillögur og þingnefndir

Við skráningu er þess óskað að þátttakendur velji sér þingnefnd eftir áhuga og starfssviði en þó verður leitast við að skapa jafnvægi í hverri nefnd milli fulltrúa fyrirtækja, stuðningsaðila og þingmanna.
 
Járnsmiðjan Óðinn hlýtur D-gæðavottun

30.1.2007 Gæðastjórnun og rekstur : Járnsmiðja Óðins fær D-gæðavottun

Það voru stoltir og glaðir stjórnendur og starfsmenn Járnsmiðju Óðins ehf. sem tóku við D-vottun en hún er fyrsta þrepið á áfangaskiptri gæðavottun Samtaka iðnaðarins.
 

29.1.2007 Orku- og umhverfismál : Fundaröð um atvinnulíf og umhverfi

Miðvikudaginn 31. janúar næstkomandi heldur fundaröð SA um atvinnulíf og umhverfi áfram en hún hófst á haustdögum 2006. Að þessu sinni verður fjallað um umhverfisáhrif frá álveri Alcan í Straumsvík – fyrir og eftir stækkun.
 
REACH

29.1.2007 Orku- og umhverfismál : Aukin ábyrgð iðnaðar

Meginbreytingin með REACH, nýju efnalöggjöf EB, er að sönnunarbyrði um öryggi á markaði er snúið við, frá yfirvöldum og til framleiðenda. Mikilvægt er að innflytjendur efna frá löndum utan EB bera sömu skyldur og efnaframleiðendur. Á næstu árum verða efni á markaði skráð með skipulegum hætti. Allir þeir, sem framleiða efni, eða flytja inn efni utan Evrópusambandsins, eiga að skrá þau á tilsettum tíma.
 
Framtíðin er í okkar höndum

28.1.2007 Markaðsmál : Mikill áhugi á þátttöku í SPROTAÞINGI 2007

Allt stefnir í góða þátttöku í væntanlegu Sprotaþingi sem fram fer föstudaginn 2. febrúar næstkomandi. Skráningar berast ört og er um helmingur þingsæta nú þegar bókaður. Mikill áhugi er meðal fulltrúa stjórnmálaflokka, stuðningsumhverfis og sprota- og hátæknifyrirtækja að taka þátt. Listi þingmála og nefnda verður birtur á hádegi á morgun mánudag.

 
ÚTBOÐSÞING 2007

26.1.2007 Opinber innkaup og útboð : Úboðsþing SI 2007 vel sótt

Fjölmenni var í dag á árlegu Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins, Félags vinnuvélaeigenda og Mannvirkis – félags verktaka.
 

26.1.2007 Gæðastjórnun og rekstur : Öryggi og heilbrigði á vinnustað

VST hf. og Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. standa fyrir námstefnu þann 31. janúar nk. undir yfirskriftinni „Öryggi og heilbrigði á vinnustað - allra hagur.“ Námstefnan er haldin á Hótel Nordica og hefst kl. 8:30.
 
Helgi Magnússon

26.1.2007 Leiðari SI : Bjartsýni í byrjun árs

Samtök atvinnulífsins og Seðlabanki Íslands birtu í lok desember sl. niðurstöður reglubundinnar könnunar Capacent Gallup meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins á stöðu og framtíðarhorfum. Tæplega þrír fjórðu stjórnenda telja að núverandi aðstæður í efnahagslífinu séu góðar og hafa sjaldan verið bjartsýnni.
 
Íslenskukennsla fyrir erlent starfsfólk

25.1.2007 Menntun og fræðsla : Íslenska á vinnustað - já takk

Aðildarfyrirtæki SI eru hvött til að bjóða erlendu starfsfólki kennslu í íslensku. Fyrirtækin geta, að uppfylltum tilteknum skilyrðum, sótt um styrk til kennslunnar hjá menntamálaráðuneytinu. Umsóknarfrestur rennur út 2. febrúar næstkomandi.
 
CE_vefur_Vinstridalka_Banner_RGB_JPEG

25.1.2007 Gæðastjórnun og rekstur : Upplýsingaveita um CE-merkingar á byggingavörum

Hér er á ferðinni gagnlegur gátlisti sem í rökréttri röð inniheldur upplýsingar og staðreyndir sem eru til þess fallnar að veita framleiðendum og birgjum djúpan skilning á efninu með stuðningi raunverulegra dæma.
 
AVS

24.1.2007 Líftækni : Framtíð AVS - Taktu þátt í mótun sjóðsins

AVS sjóðurinn og starfsemi hans hefur verið þróuð í mikilli samvinnu við aðila sjávarútvegsins og iðnaðar. Þessir sömu aðilar hafa lýst áhuga sínum á því að halda þátttöku sinni áfram sem er vel. Framundan er skerping markmiða og stefnu sjóðsins og því býður sjóðurinn öllum áhugasömum að koma á fund á Loftleiðum föstudaginn 26. jan. nk. Kl 13-17.
 

24.1.2007 Líftækni : Framtíð AVS - Taktu þátt í mótun sjóðsins

AVS sjóðurinn og starfsemi hans hefur verið þróuð í mikilli samvinnu við aðila sjávarútvegsins og iðnaðar. Þessir sömu aðilar hafa lýst áhuga sínum á því að halda þátttöku sinni áfram sem er vel. Framundan er skerping markmiða og stefnu sjóðsins og því býður sjóðurinn öllum áhugasömum að koma á fund á Loftleiðum föstudaginn 26. jan. nk. Kl 13-17.
 

24.1.2007 Alþjóðlegt samstarf : Kynning á 7. rannsóknaáætlun ESB

Rannís stendur fyrir kynningu á 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins á Hótel Nordica 26. janúar kl. 08.30 - 17.00.
 
CE_vefur_Vinstridalka_Banner_RGB_JPEG

23.1.2007 Forsíðufréttir : Samtök iðnaðarins opna vefsetur um CE-merkingar á byggingavörum

Hér er á ferðinni gagnlegt vefsetur sem inniheldur upplýsingar og staðreyndir sem eru til þess fallnar að veita framleiðendum og birgjum djúpan skilning á efninu með stuðningi raunverulegra dæma.
 
ÚTBOÐSÞING 2007

23.1.2007 Opinber innkaup og útboð : ÚTBOÐSÞING 2007 - Verklegar framkvæmdir í mannvirkjagerð og byggingariðnaði

Árlegt ÚTBOÐSÞING um verklegar framkvæmdir verður haldið föstudaginn 26. janúar frá kl. 13:00 á Grand Hótel Reykjavík.
 
Framtíðin er í okkar höndum

23.1.2007 Sprotafyrirtæki : SPROTAÞING 2007 - Staða og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja í brennidepli á þingi stjórnmálaflokka, stoðkerfis og atvinnulífs

Í samstarfi við þingflokka stjórnmálaflokka, ráðuneyti iðnaðar-, viðskipta- og menntamála, háskóla og aðila stoðkerfis og atvinnulífs efna SI og aðildarfélög til Sprotaþings 2007 föstudaginn 2. febrúar nk.
 

22.1.2007 Starfsskilyrði iðnaðar : Hert viðurlög ef lituð olía er notuð án heimildar

Refsing við notkun litaðrar olíu án heimildar hefur verið þyngd verulega og tekur nú mið af heildarþyngd ökutækis en ekki af þvi magni af olíu sem ætla má að dregið hafi verið undan.
 

22.1.2007 Markaðsmál : SPROTAÞING 2007 - Nánari upplýsingar, dagskrá, tillögur og þingnefndir

Á þinginu verður fjallað um stöðu og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja á Íslandi og tillögur þingheims lagðar fram til afgreiðslu. Sprotaþing 2007 markar einnig upphaf Sprotavettvangs sem formlega hefur störf í kjölfarið.
 
Framtíðin er í okkar höndum

20.1.2007 Markaðsmál : Framtíðin er í okkar höndum - Samhæfð dagskrá viðburða og verkefna er tengjast málefnum sprota- og háhæknifyrirtækja á Íslandi

Í vetur efna SI og aðildarfélög til margvíslegra viðburða sem eiga það sameiginlegt að tengjast málefnum sprota- og hátækniiðnaðar á Íslandi. Úrbætur starfsskilyrða eru gríðarlega aðkallandi og mikilvægar fyrir þjóðarbúskapinn.
 

18.1.2007 Menntun og fræðsla : Áhættumat og forvarnir á vinnustöðum

Ráðstefna á Grand Hótel, 23. janúar 2007, kl. 13-16.

 

17.1.2007 Menntun og fræðsla : Þurfa starfsmenn þínir að læra íslensku?

Fyrirtæki og fræðsluaðilar, sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku, geta sótt um styrki hjá menntamálaráðuneytinu.
 
Vilhjálmur Egilsson

15.1.2007 Starfsskilyrði iðnaðar : Aftur á bak eða áfram í skattamálum?

„Íslenskt atvinnulíf bíður eftir því að heyra hvort halda eigi áfram eða aftur á bak í skattamálum. Framhaldið mun ráða miklu um það hvort lífskjör á Íslandi haldast áfram í fremstu röð eða hvort við sígum niður úr hópi fremstu þjóða heims,” sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í erindi sem hann flutti á skattadegi Deloitte en þar kallaði hann eftir skýrum skilaboðum frá öllum stjórnmálaflokkum um það hvert þeir ætli að stefna í skattamálum atvinnulífsins.
 
Iðan - fræðslusetur

12.1.2007 Prentiðnaður : Prenttæknistofnun verður Prenttæknisvið IÐUNNAR fræðsluseturs

Á vormánuðum 2006 voru fræðslumiðstöðvar á Hallveigarstíg loks sameinaðar og til varð ein rekstrareining sem fékk heitið IÐAN fræðslusetur. Í þessari grein útskýrir Björn Sigurjónsson m.a. aðkomu Prenttæknistofnunar að IÐUNNI.
 
Urvinnslusjodur

4.1.2007 Umhverfismál : Úrvinnslugjald innheimt af umbúðum úr pappír, pappa og plasti

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um úrvinnslugjald sem fela í sér að frá áramótum verður lagt úrvinnslugjald á allar umbúðir úr pappa, pappír og plasti sem fara á markað.
 

4.1.2007 Umhverfismál : Úrvinnslugjald innheimt af umbúðum úr pappír, pappa og plasti

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um úrvinnslugjald sem fela í sér að frá áramótum verður lagt úrvinnslugjald á allar umbúðir úr pappa, pappír og plasti sem fara á markað.
 
putting-ip-into-practice

4.1.2007 Upplýsingatækni : Þekkingarauður fyrirtækja – þekkingarskýrslur

Norræna nýsköpunarmiðstöðin NICe hefur gefið út skýrsluna: Putting Intellectual Capital into Practice. Skýrslan er afrakstur verkefnis samtaka upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum og fjallar um gerð vísbendinga fyrir þekkingarverðmæti
 

4.1.2007 Orku- og umhverfismál : Ný efnalöggjöf samþykkt í Evrópuþinginu

Evrópuþingið hefur samþykkt nýja efnalöggjöf sem gengur undir nafninu REACH. Talsverður styr hefur staðið um þessa umfangsmestu löggjöf sambandsins enda mun áhrifa hennar gæta víða í atvinnulífinu. Aukin krafa er um upplýsingagjöf bæði frá framleiðendum og innflytjendum varðandi hættueiginleika efna.  Notendur efna í iðnaði eiga á móti að veita upplýsingar um notkun sína. 
 
AVS

3.1.2007 Líftækni : AVS rannsóknarsjóður auglýsir eftir styrkumsóknum

AVS rannsóknarsjóður auglýsir nú eftir umsóknum fyrir árið 2007. Frestur til að sækja um styrk til rannsókna- og þróunarverkefna er til 1. febrúar 2007. AVS stendur fyrir ,,Aukið virði sjávarfangs” og sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem miða að því að auka verðmæti sjávarfangs.
 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.