Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

Iðan - fræðslusetur

30.4.2007 Menntun og fræðsla : Aðalfundur IÐUNNAR-fræðsluseturs

Aðalfundur IÐUNNAR-fræðsluseturs var haldinn sl. þriðjudag, 24. apríl.
 
Bechtel

26.4.2007 Orku- og umhverfismál : Bechtel hlýtur Kuðunginn

Á degi umhverfisins veitti Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, verktakafyrirtækinu Bectel Kuðunginn, sem er árleg umhverfisviðurkenning umhverfisráðuneytisins.

 
Útflutningsverðlaun forseta Íslands

20.4.2007 Matvælaiðnaður : Lýsi hf. hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands

Lýsi hf. hlaut í gær, fimmtudaginn 19. apríl, Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin en það var Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri sem veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins.

 
Merki Samtaka atvinnulífsins

18.4.2007 Starfsskilyrði iðnaðar : Bjartsýn þjóð á leið í ESB?

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fór fram á Hótel Nordica í gær, þriðjudaginn 17. apríl. Fundur sem bar yfirskriftina ÍSLAND 2050 – TVEIR Á MÓTI EINUM var vel sóttur en með yfirskriftinni var vísað til þess að árið 2050 stefnir í að fyrir hvern ellilífeyrisþega verði tveir Íslendingar á vinnumarkaði. Á fundinum var einnig kynnt ný könnun Capacent Gallup á viðhorfum Íslendinga til framtíðarinnar. Þá ávarpaði m.a. Geir H. Haarde forsætisráðherra fundinn.
 
ESB fáninn

16.4.2007 Alþjóðlegt samstarf : Kappræðufundur um Evrópumál

Ragnar Arnalds og Þorvaldur Gylfason takast á um Evrópumálin á kappræðufundi sem haldinn verður í Háskólanum á Akureyri í hádeginu þriðjudaginn 17. apríl nk. Fundurinn hefst kl 12:30 og fer fram í stofu L101 á Sólborg.
 
Eggert_Claessen

13.4.2007 Upplýsingatækni : Leitað að englum

Á Íslandi er skipulag áhættufjárfestinga með þeim hætti að nýjum fyrirtækjum sýnist sem það séu aðeins Nýsköpunarsjóður og Brú sem gegna hlutverki áhættufjárfestis þó að nokkuð sé um það að fjárfest sé í hugmyndum og óskráðum félögum í gegnum persónuleg tengsl segir Eggert Claessen í nýlegri grein sem birtist í Viðskiptablaðinu.
 
Svava Grönfeldt rektor HR og Sveinn Hannesson stjórnarformaður Iðunnar undirrita samninginn

12.4.2007 Menntun og fræðsla : Nýr samningur um að efla rannsóknir og stjórnunarþekkingu iðnlærðra

Háskólinn í Reykjavík og IÐAN fræðslusetur hafa undirritað viðamikinn samstarfssamning um stjórnunar- og rekstrarnám í iðnaði.
 
Evra-Merki-250pix1

11.4.2007 Alþjóðlegt samstarf : Óboðleg rök og rangfærslur í Evrópumálum

Eitt er að færa vond rök fyrir máli sínu en annað og öllu verra að bera á borð rangfærslur máli sínu til stuðnings en slíkt gera sumir andstæðingar ESB og evru stundum, einkum þegar talað er um hagvöxt og atvinnuleysi.
 

10.4.2007 Menntun og fræðsla : SI gera samning við MIT

Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands gerðu á dögunum samstarfssamning við Massachusetts Institut of Technology (MIT). Háskólinn í Reykjavík hefur umsjón með samningnum í umboði SI og VÍ.
 

4.4.2007 Mannvirkjagerð : Rakalausar fullyrðingar um Vallahverfi

Stjórn Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði mótmælir fullyrðingum Egils Helgasonar í Silfri Egils um Vallahverfi í Hafnarfirði sem tilefnis- og rakalausum og krefst afsökunarbeiðni.
 

4.4.2007 Orku- og umhverfismál : Setjum kraft í umhverfisstarfið

Samtök iðnaðarins leita að fyrirtækjum til að taka þátt í samstarfsverkefni um umhverfisstjórnun. Markmiðið með verkefninu er að hanna einfalt umhverfisstjórnunarkerfi og laga það að litlum og meðalstórum fyrirækjum. Þátttakendur fá aðstoð ráðgjafa við að setja upp kerfið og haldnar verða málstofur og vinnufundir.
 
Sveinn Hannesson

3.4.2007 Leiðari SI : Áfangi í þróun íbúalýðræðis?

Atkvæðagreiðsla um stækkun álversins í Straumsvík fór fram 31. mars. Niðurstaðan er sú að nei sögðu 6.382 (50,3%) en já sögðu 6.294 (49,7%). Munurinn er 88 atkvæði. Hafnfirðingar hafa með ótrúlega naumum meirihluta hafnað stækkun stærsta iðnfyrirtækis í bænum. 

Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði segir atkvæðagreiðsluna „Mikilvægan áfanga í þróun íbúalýðræðis.“  Það er ástæða til að velta fyrir sér hver verður næsti áfangi í þróun íbúalýðræðis. Stóra spurningin hér hlýtur að vera sú hvort og við hvaða aðstæður slíkum íbúakosningum verður framvegis beitt í tengslum við uppbyggingu atvinnurekstrar í tíma og ótíma? Verða slíkar íbúakosningar teknar upp í öðrum sveitarfélögum eða einskorðaðar við Hafnarfjörð?

 

2.4.2007 Umsagnir um frumvörp : Frumvarp til laga um losun gróðurhúsalofttegunda, 641. mál

SI telja að í frumvarpi þessu sé að finna eðlilega og sanngjarna leið til að úthluta svokölluðu íslenska ákvæði við Kyoto bókunina við loftlagssamning Sameinuðu þjóðanna fyrir skuldbindingartímabilið 2008-2012. Sjá sameiginlega umsögn SA, SI og Samorku.
 

2.4.2007 Umsagnir um frumvörp : Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 40/2001, um stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða, og á lögum nr. 25/2006, um stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins, með síðari breytingum, 570. mál.

Samtökin telja að tillaga um að Rarik og Orkubú Vestfjarða verði að fullu í eigu Landsvirkjunar gangi þvert á fyrirætlanir stjórnvalda um að auka samkeppni á raforkumarkaði. Til að auka samkeppni á þessum markaði þarf að gera skipulagsbreytingar sem skapa meira jafnræði milli framleiðenda. Umrædd breyting gengur í þveröfuga átt.
 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.