Sumarlokun SI
Skrifstofa Samtaka iðnaðarins verður lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júlí - 6. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Reglur um fullyrðingar á umbúðum matvæla
Ný reglugerð um fullyrðingar á umbúðum matvæla tók gildi hjá Evrópusambandinu 1. júlí. Reglugerðin hefur ekki verið tekin inn í EES samninginn en unnið er að innleiðingu hennar þannig að búast má við að hún taki gildi hér á næsta eða þarnæsta ári.
Námsefnisstyrkur SI
Auglýst er eftir umsóknum í seinni úthlutun 2007 námsefnisstyrks SI og þurfa umsóknir að hafa borist Samtökum iðnaðarins, Borgartúni 35, fyrir 30. september.
Blátt lón undir bláum fána
Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun hafna og baðstranda. Hér á landi hafa bæði Bláa lónið og baðströndin við Nauthólsvík hlotið þetta merki en Bláa lónið tók við fánanum í fimmta sinn nú í vor.
Handverk og stjórnun
Upplýsingar eru eins og hver önnur hráefni sem þurfa að fá rétta og faglega meðhöndlun til að vel takist til og úr verði gæði.
Óljóst markmið peningastefnunnar
Skilyrði þess að peningastefna, sem byggist á verðbólgumarkmiði geri sitt gagn, eru í grundvallaratriðum tvö. Í fyrsta lagi að Seðlabankinn sé sjálfstæður í ákvörðunum sínum og láti hvorki stjórnmálamenn né aðra hagsmunagæsluhópa hafa áhrif á þær. Annað skilyrðið er að Seðlabankinn hafi engin önnur markmið svo sem um gengi, atvinnustig, atvinnuleysi, launaþróun eða hagvöxt. Þar að auki er afar mikilvægt að Seðlabankinn njóti trausts og trúverðugleika.
Ný efnalöggjöf tekur gildi í vetur
Ný efnalöggjöf, sem gengur undir nafninu REACH, tók gildi í Evrópu 1. júní og verður tekin upp í íslenska löggjöf í vetur. REACH er víðtæk löggjöf og snertir mun fleira en virðist í fyrstu og gerir allt aðrar kröfur til atvinnulífsins en verið hefur. Mikilvægt er að þeir sem flytja inn, framleiða eða nota efni og efnavörur, kynni sér hvað í henni felst.
Berlínarför byggingariðnaðarins
Byggingasvið IÐUNNAR-fræðsluseturs heimsótti í apríl systursamtök sín í Berlín, Handwerkskammer Berlin.
Kjarakönnun SI og FBM
Árlega standa Samtök iðnaðarins og Félag bókagerðarmanna að kjarakönnun meðal starfsfólks í prentiðnaði en Capacent annast framkvæmd könnunarinnar samkvæmt samningi við SI og FBM.

