Forsíðufréttir

28.9.2007 Menntun og fræðsla : Tækninám á flugi

Samtök iðnaðarins hafa um ára­­bil haft á stefnuskrá sinni að bæta menntun og mannauð fyrirtækja. Atvinnulífið hefur umbreyst síðastliðinn áratug. Mesta eftirspurn fyrirtækja er nú bundin við rétt menntað og þjálfað starfsfólk. Afskipti Samtakanna af menntamálum eru víðtæk og ná m.a. til háskóla­stigsins. Lesa meira
 
Háskólinn á Akureyri

27.9.2007 Menntun og fræðsla : Alþjóðavæðingunni best svarað með opnun og þátttöku

Í ræðu sinni sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor, meðal annars að Alþjóðavæðing­unni yrði best svarað með opnun og þátttöku en ekki einangrun. Lesa meira
 
Innovit

26.9.2007 Nýsköpun og þróun : Innovit ehf. til liðs við frumkvöðla í háskólum

Innovit var formlega stofnað sem einka­hlutafélag í almannaþágu og eru stofn­endur og eigendur Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og hugmyndasmiðir Innovit þau: Andri Heiðar Kristinsson, Magnús Már Einars­son og Stefanía Sigurðardóttir. Lesa meira
 
braud&kokur

25.9.2007 Matvælaiðnaður : Verðhækkanir á ýmsum matvælum óhjákvæmilegar vegna hækkana á heimsmarkaði

Mörg matvæli hafa hækkað talsvert í verði að undanförnu. Þetta á sérstaklega við um vörur sem þurfa mikið hveiti og sykur svo sem brauð, kökur, sælgæti og ýmsar drykkjarvörur, einkum gosdrykkir. Þessar hækkanir stafa fyrst og fremst af miklum verðhækkunum hrávöru á heimsmarkaði en ekki aukinni álagningu framleiðenda. Lesa meira
 

23.9.2007 Menntun og fræðsla : Námsefnisstyrkur SI

Umsóknarfrestur um námsefnisstyrk er til og með 30. september nk. Samtök iðnaðarins auglýsa eftir umsóknum um styrki til útgáfu á námsefni í iðngreinum og öðrum greinum sem varða iðnað. Í fyrra var varið alls um níu milljónum króna til sjö verkefna. Lesa meira
 

23.9.2007 Menntun og fræðsla : Veittur námsefnisstyrkur Samtaka iðnaðarins

Á dögunum var námsefnisstyrkur Samtaka iðnaðarins veittur fjórum aðilum fyrir alls sex verkefni sem einkennast af mikilli fjölbreytni. Lesa meira
 
MNÍ

20.9.2007 Matvælaiðnaður : Skráning hafin á Matvæladag MNÍ 2007

Hver ræður hvað þú borðar? Matvæladagur MNÍ 2007 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík 16. október næstkomandi kl. 12-17. Lesa meira
 

19.9.2007 Matvælaiðnaður : Food Ingredients Europe 2007

Sýning og ráðstefna „Food Ingredients Europe“ í London 30. október - 1. nóvember 2007. Búist er við yfir 20.000 gestum. Lesa meira
 
Nordnet 2007

17.9.2007 Nýsköpun og þróun : Nordnet 2007

Heimsþekktir fyrirlesarar og umfjöllun um áhættu frá fjölda sjónarhorna einkenna alþjóðlegu ráðstefnuna „Projects Under Risk“ sem Verkefnastjórnunarfélag Íslands stendur fyrir í samvinnu við NORDNET, dagana 26. - 28. september nk. Lesa meira
 
Staðlaráð

14.9.2007 Staðlamál og CE-merkingar : Fyrirtæki aðilar að Staðlaráði Íslands

Aðild að Staðlaráði Íslands getur verið áhugaverður kostur fyrir fyrirtæki, ekki síst þau sem starfa í greinum þar sem CE-merkingar skipta máli. Lesa meira
 
Merki Háskóla Íslands

13.9.2007 Alþjóðlegt samstarf : Uppspretta auðæfa í smáríkjum

Opin ráðstefna föstudaginn 14. september frá kl. 9:00 til 17:00 í hátíðarsal Háskóla Íslands á vegum Rannsóknarseturs um smáríki. Fjallað verður um hvernig smáríki í Evrópu hafa breyst úr fátækum kotríkjum í auðug borgarríki. Áhersla verður lögð á að skýra hvernig smáríkjum eins og Íslandi og Írlandi hefur tekist að byggja upp auð og hefja útrás til stærri og voldugri ríkja. Lesa meira
 

12.9.2007 Orku- og umhverfismál : Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar

Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun boða til málstofu föstudaginn 14. september í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar. Málþingið fer fram á Hótel Loftleiðum og stendur frá kl. 9:00 til 12:00. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Lesa meira
 
Útflutningsráð Íslands

11.9.2007 Útflutningur - útrás : ÚH-18 hefst í október

Fræðsluverkefnið Útflutningsaukning og hagvöxtur, ÚH, verður haldið í átjánda sinn í haust. Það er ætlað fyrirtækjum sem hafa áhuga á að hefja útflutning, auka útflutning eða treysta tök sín á markaðssetningu erlendis. Lesa meira
 
ESB-almenn-agu2007

9.9.2007 Alþjóðlegt samstarf : Mesti stuðningur við aðild og evru síðan 2002

Um 48% Íslendinga segjast hlynntir aðild Íslands að Evrópusambandinu en 33% eru andvígir. Þetta kemur fram í könnun Capacent Gallup fyrir Samtök iðnaðarins. Þeir sem segjast hlynntir því að taka upp evru eru nú um 53% en voru 50% í febrúar. Lesa meira
 
2007-ISMOT-DSC_5875

4.9.2007 Þjónustuiðnaður : Úrslit ÍSMÓTS

ÍSMÓT - Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins - The Icelandic Skills Competition – fór fram um síðustu helgi. Þátttaka var mikil en samhliða mótinu var haldin glæsileg sýning þar sem fyrirtækjum, félögum og stofnunum var boðið að kynna vöru sína og þjónustu.

Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica