Litið um öxl
Sveinn Hannesson lét af störfum um síðustu mánaðamót eftir nær 16 ára starf sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Á þeim tíma hefur margt breyst, bæði hjá samtökum atvinnurekenda og í atvinnulífinu, samsetningu þess og starfsskilyrðum. Það er því við hæfi að fá Svein til að líta yfir farinn veg og rifja upp með lesendum ýmislegt sem helst hefur sett svip sinn á þessi sextán ár að hans mati.
Jóla- og áramótakveðja frá Samtökum iðnaðarins
Samtök iðnaðarins óska félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Styrkir til endurbyggingar slippa ólögmætir að mati ESA
Eftirlitssofnunnar EFTA (ESA) ákvað fyrr í þessum mánuði að hefja formlega rannsókn á nýlegri breytingu Alþingis á hafnarlögum sem heimilar ríkissjóði að bæta að fullu tjón á upptökumannvirkjum. Ákvörðun stofnunarinnar er ekki endanleg, en á þessu stigi er það mat hennar að umrædd breyting á hafnalögum og 200 milljón króna fjárveiting í samgönguáætlun brjóti í bága við ákvæði EES-samningsins um ríkisstyrki og sé því ólögmæt.
Öflugt starf verkefnahópa Samtakanna
Samtök iðnaðarins boðuðu ráðgjafaráð, formenn og stjórnir aðildarfélaga sinna til fundar að Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 29. nóvember síðastliðinn. Á dagskrá var starf verkefnahópa SI og núverandi staða verkefna.
Framkvæmdastjóraskipti
Nú í byrjun desember lét Sveinn Hannesson af starfi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins eftir 16 ára farsæl störf fyrir SI og forvera þeirra, Félag íslenskra iðnrekenda. Sveinn hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Gámaþjónustunnar hf. sem hefur verið ört vaxandi fyrirtæki og er félagi í Samtökum iðnaðarins. Við starfinu tekur Jón Steindór Valdimarsson sem verið hefur aðstoðarframkvæmdastjóri um árabil og unnið náið með Sveini. Það er því reyndur maður sem kemur í staðinn.
Nýr aðstoðarframkvæmdastjóri SI
Jón Bjarni Gunnarsson hóf störf 1. desember sem aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Samtökum iðnaðarins.
SI varar við Euro Business Guide
Samtök iðnaðarins vilja vara við fyrirtækinu Euro Business Guide. Fyrirtækið sendir nú út bréf, bæði í tölvupósti og með hefðbundnum pósti, þar sem fyrirtækjum er gefin kostur á að skrá sig í gagnagrunn þess en þar eru brögð í tafli.
Menntadagur iðnaðarins 2008
Menntadagur iðnaðarins verður 23. janúar 2008 og er yfirskrift hans Námsefnisgerð fyrir iðn- og starfsnám. Samtökin verja 10 m.kr. árlega til að styrkja námsefnisgerð.
Vaxtahækkun eykur verðbólguna
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,68% frá fyrra mánuði samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Verðbólga mælist nú 5,9% en 2,6% án fasteignaverðs. Það sem vekur sérstaka athygli er að kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,9% og að stærstum hluta er það vegna hækkunar vaxta en ekki vegna hækkunar fasteignaverðs. Vaxtahækkanir Seðlabankans, sem ætlað er að draga úr verðbólgu, hafa þannig bein áhrif til hækkunar verðbólgu
Félag íslenskra gullsmiða í samstarf við ABC barnahjálp
Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Félags íslenskra gullsmiða og ABC barnahjálpar sem gengur út á sölu svokallaðra Kærleikshálsmena.
Bókaprentun hefur aukist talsvert
Bókasamband Íslands hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem birtist í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2007. Heildarfjöldi bókatitla er 780 í bókatíðindunum í ár en var 650 árið 2006.
Fjölsóttur kynningarfundur um Eurostars
Kynningarfundur um nýjan möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda sjálf rannsóknir og þróun var vel.
Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Evrópusambandið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2008.
MÁLMUR fagnaði 70 ára afmæli sínu
Hinn 28. nóvember sl. voru sjötíu ár frá því að Meistarafélag járniðnaðarmanna var stofnað og í tilefni þessara tímamóta var fjölmenn móttaka á vegum félagsins í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni í Reykjavik.

