Beint í leiðarkerfi vefsins.
Samtök iðnaðarins standa fyrir opnum fundi á Hótel Borg 12. febrúar næstkomandi um stöðu kvenna í iðnaði. Fundurinn ber yfirskriftina Virkjum kraft kvenna í iðnaði og hefst klukkan 8.00 með morgunverði í boði SI. Dagskráin hefst síðan klukkan 8.30 og lýkur klukkan 10.30.
Lesa meira
Góð mæting var á kynningarfund sem stjórn Samtaka iðnaðarins bauð alþingismönnum til í húsakynnum CCP hf. föstudaginn 25. janúar. Um 20 þingmenn komu á fundinn, ræddu málefni iðnaðar við stjórn og forsvarsmenn samtakanna og hlustuðu á stórskemmtilegan fyrirlestur um CCP og tölvuleikinn EVE online.
Fjölmenni var í dag á Menntadegi iðnaðarins þar sem fjallað var um námsefnisgerð í iðn- og starfsnámi.
Rúmlega 100 manns mættu á ráðstefnuna og hlustuðu erindi framsögumanna.
Lesa meira